Franski leikstjórinn Claude Lanzmann er látinn Atli Ísleifsson skrifar 5. júlí 2018 15:47 Claude Lanzmann er þekktastur fyrir heimildarmyndina Shoah. Vísir/Getty
Franski leikstjórinn, rithöfundurinn og blaðamaðurinn Claude Lanzmann er látinn. Að sögn útgefanda Lanzmann andaðist Lanzmann á heimili sínu í París í morgun. Hann varð 92 ára gamall. Lanzmann er þekktastur fyrir Shoah, níu klukkustunda langa heimildarmynd sína um helför gyðinga sem þykir ein af merkustu heimildarmyndum sögunnar. Í myndinni er rætt við nokkra þá sem lifðu af vist í útrýmingarbúðum nasista í Póllandi í síðari heimsstyrjöldinni. Nýjasta heimildarmynd Lanzmann, Les quatre soeurs, Systurnar fjórar, var frumsýnd í Frakklandi einungis fyrir nokkrum dögum síðan. Leikstjórinn fæddist í París árið 1925 og umgekkst ungur heimspekingana Simone de Beauvoir og Jean-Paul Satre. Hann tók við ritstjórastöðunni hjá blaðinu Les Temps Modernes af de Beauvoir, stöðu sem hann gegndi allt til dauðadags. Lanzmann var giftur leikkonunni Judith Magre til ársins 1971. Hann gekk tvívegis í hjónaband eftir það og eignaðist tvö börn, dótturina Angelique og soninn Felix.
Andlát Bíó og sjónvarp Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira