Vegagerðin spáir áfram vaxandi umferðarþunga Kjartan Kjartansson skrifar 2. ágúst 2018 20:14 Umferð hefur aukist um 3% á milli júlímánaða allt frá árinu 2005. Vísir/Ernir
Umferð hefur aukist um þrjú prósent það sem af er þessu ári miðað við árið í fyrra. Vegagerðin segir að aukningin miðað við árstíma sé sú minnsta frá árinu 2012. Í frétt á vef Vegagerðarinnar kemur fram að umferðin á hringveginum og á höfuðborgarsvæðinu jókst um 2,6% í júlí borið saman við sama mánuð í fyrra. Umferðin í borginni jókst svipað í öllum mælisniðum Vegagerðarinnar, frá 2,1 og upp í 2,9%. Mest var umferðin á Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi þar sem rúmlega 61 þúsund ökutæki fóru um á sólahring. Af mælisniðum Vegagerðarinnar var minnst ekið um Hafnarfjarðarveg við Kópavogslæk, um 43 þúsund ökutæki á sólahring. Umferðin í júlímánuði hefur aukist um 3% á milli ára frá árinu 2005 og því er aukningin í borginni nú aðeins undir meðalaukningunni. Frá áramótum hefur umferðin aukist um 3% miðað við sama tímabil í fyrra. Það er minnsta umferðaraukning á þessum árstíma sem sést hefur frá árinu 2012. Vegagerðin segir að hegði umferðin sér líkt og í meðalári megi búast við svipaðri aukningu í þeim mánuðum sem eftir eru af árinu. Heildaraukningin verði því um 3% miðað við síðasta ár. Aukning var í umferð alla vikudaga nema sunnudaga en þar mældist um 2,3% samdráttur miðað við sama vikudag í júlí í fyrra. Mest jókst umferð á þriðjudögum og fimmtudögum eða um 3,0%. Mest var ekið á fimmtudögum og minnst á sunnudögum.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Fleiri fréttir Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Sjá meira