Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Bjarki Sigurðsson skrifar 8. september 2026 07:25 Þeir sem ætluðu sér upp í Eiffelturninn á mánudag þurftu að fresta ferðinni. Getty/Pierre Crom Starfsmenn Eiffelturnsins í París fóru í verkfall í gær og loka þurfti turninum eftir að kvenkyns starfsfólki var gert að yfirgefa stöðvar sínar vegna heimsóknar trúarhóps af hindúatrú. Stjórnendur hafa beðið starfsfólkið afsökunar.
Á laugardag heimsóttu hundrað meðlimir trúarhóps af hindúatrú Eiffelturninn en um helgina opnaði hópurinn sína fyrstu trúarmiðstöð í París. Þegar meðlimir hans mættu var öllu kvenkyns starfsfólki gert að yfirgefa stöðvar sínar og karlkyns starfsmenn settir þar í staðinn. Meðlimir hópsins höfðu óskað eftir því við stjórnendur að sjá til þess að þeir myndu eiga í sem minnstum samskiptum við konur á meðan þeir skoðuðu turninn. Samkvæmt grein BBC mun starfsfólki hafa verið mjög brugðið og kvenkyns starfsfólk upplifað mikla niðurlægingu. Starfsmenn funduðu um helgina og stigmagnaðist reiði þeirra verulega. Þeir ákváðu að fara í verkfall í gær og gat því enginn heimsótt turninn þá. Vildu starfsmenn með þessu sýna að konur sem starfa þar myndu aldrei nokkurn tímann láta slíkt atvik viðgangast aftur. Stjórnendur hafa beðið starfsfólk afsökunar og hefur trúarhópurinn einnig beðist afsökunar. Í tilkynningu segir að hópurinn hafi ekki viljað heimsækja turninn utan opnunartíma til að valda ekki ónæði. Atvikið hefur verið gagnrýnt af fjölmörgum stjórnmálaleiðtogum í Frakklandi, þar á meðal af Marine Le Pen, fyrrverandi forsetaframbjóðanda, og Gabriel Attal, fyrrverandi forsætisráðherra. „Í Frakklandi getur ekki nein menning, engin trú, ekki neitt, ekki neinn ákveðið að segja konum hvar þær mega og mega ekki vera,“ segir Attal.
Frakkland Jafnréttismál Trúmál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Sjá meira