Frambjóðandi í Flórída sakaður um rasisma Samúel Karl Ólason skrifar 29. ágúst 2018 17:19 Ron Desantis. Vísir/AP
Ron DeSantis, frambjóðandi Repúblikanaflokksins til embættis ríkisstjóra í Flórída, hefur verið sakaður um rasisma gagnvart svörtum mótframbjóðanda sínum. DeSantis er sagður hafa ýjað að því að frambjóðandi Demókrataflokksins, Andrew Gillum, væri api þegar hann sagði að kjósendur ættu ekki að „monkey this up“, sem beinþýðist sem „apa þetta upp“ með því að kjósa Gillum og gera ríkið gjaldþrota. Ef Gillum yrði kosinn yrði hann fyrsti svarti ríkisstjóri Flórída. Demókratar segja DeSantis hafa verið að tala undir rós til rasista með því að ýja að því að Gillum væri api. Formaður Demókrata í Flórída sagði ummælin vera ógeðsleg. Talsmaður DeSantis segir fáránlegt að tengja ummælin við rasisma og sagði frambjóðandann hafa verið að tala um að stefnumál Gillum myndu gera stöðu stjórnmála í Flórída að skrípaleik. Gillum var í viðtali á CNN í dag þar sem hann sagði íbúa Flórída vera að leita að ríkisstjóra sem gæti sameinað íbúa. Þeir væru ekki að leita að „kvenhatara, rasista eða ofstækismanni“. Forvöl voru haldin í Flórída í gær og kom sigur Gillum sérfræðingum á óvart. Gillum þykir framsækinn og er studdur af Bernie Sanders. DeSantis er aftur á móti dyggur stuðningsmaður Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.It's disgusting that Ron DeSantis is launching his general election campaign with racist dog whistles. #FlaPol https://t.co/T9qRVYtbv3— Terrie Rizzo (@TerrieRizzo) August 29, 2018
Bandaríkin Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fleiri fréttir Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Sjá meira