Páfinn sendi mafíunni tóninn Samúel Karl Ólason skrifar 15. september 2018 13:49 Páfinn í Palermo. Vísir/AP
Frans páfi er nú staddur á Sikiley á Ítalíu þar sem hann heiðraði prest sem myrtur var af mafíunni fyrir 25 árum. Presturinn Giuseppe Puglisi var skotinn til bana árið 1993 þegar hann storkaði mafíunni vegna yfirráða þeirra yfir hverfum fátækra. Á því tímabili hafði mafían í Sikiley staðið í blóðugum átökum við yfirvöld eyjunnar. Puglisi hafði unnið hörðum höndum að því að forða ungu fólki frá glæpum. Þar til hann var skotinn í höfuðið. Sagan segir að hann hafi brosað og sagt: „Ég er búinn að vera að bíða eftir ykkur“ áður en hann var skotinn, samkvæmt einum af morðingjum hans. Allt að hundrað þúsund manns sóttu messu páfans í Palermo í dag. Þar sagði hann ljóst að meðlimir mafíunnar gætu ekki litið á sig sem kristið fólk. Það væri ómögulegt að vera bæði. „Breytist. Hættið að hugsa um ykkur sjálf og peningana ykkar,“ sagði Frans og kallaði eftir iðrun mafíósa. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem páfi kallar eftir iðrun mafíósa, eins og AFP fréttaveitan bendir á. Skömmu eftir morð Puglisi var Jón Páll páfi mættur til Palero þar sem hann sömuleiðis kallaði eftir því að glæpamenn hættu að fremja glæpi. Þar að auki hvatti hann íbúa Sikileyjar til að berjast gegn mafíunni. Tveimur mánuðum síðar voru sprengjuárásir gerðar á tvær kirkjur á Sikiley. Frans páfi hefur ítrekað gagnrýnt mafíuna frá því að hann varð páfi árið 2013 og hefur hann kallað eftir því að trúað fólk hætti að vinna með meðlimum mafíunnar. Mafíósar eru hins vegar oftar en ekki kaþólskir og taka jafnvel þátt í störfum kirkja í sóknum þeirra.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira