Lék eftir vinsælt Youtube myndband og slasaðist alvarlega Samúel Karl Ólason skrifar 15. september 2018 13:15 Hinn ellefu ára gamli Tyler Brooke bólgnaði verulega í andliti og augu hans urðu mjög blóðhlaupin. Vísir
Ellefu ára breskur drengur er alvarlega slasaður eftir að hafa reynt að leika eftir vinsælt Youtube myndband. Hann sat í hringekju á meðan vespa var notuð til að snúa henni á mjög miklum hraða. Tyler Brooke féll í yfirlið og unga fólkið sem var með honum flúði og skyldi hann eftir. Annar ungur drengur sem var þarna á ferðinni kom að Brooke og hringdi eftir sjúkrabíl.Samkvæmt Guardian er Brooke verulega bólginn í andliti eftir að mikið blóð fluttist til höfuðs hans vegna þess gífurlega miðflóttarafls sem felst í snúningum sem þessum. Hann var þar að auki í mikilli hættu á að fá blóðtappa. Móðir Brooke segir á Facebook að læknarnir sem komu honum til aðstoðar hafi aldrei séð annað eins og þeir hafi þurft að lesa sig sérstaklega til áður en þeir sinntu honum. Hún kallar „svokallaða vini“ Brooke drullusokka fyrir að hafa hlegið þegar það leið yfir hann og fyrir að hafa skilið hann eftir. Í færslunni deilir hún stuttu myndbandi af atvikinu þar sem heyra má stúlku hlæja þegar það líður yfir Brooke. Móðir Brooke segist ekki hafa birt færsluna og myndbandið til að fá vorkun. Þess í stað segist hún vonast til þess að ungt fólk sjái þetta og reyni aldrei að leika þetta eftir. „Ég hefði auðveldlega geta misst son miinn í kvöld og ég vil ekki að nokkurt annað foreldri þurfi að ganga í gegnum það sem við í fjölskyldunni erum að ganga í gegnum. Lögreglan í Nottingham, þar sem atvikið átti sér stað, er með málið til rannsóknar og hefur kallað eftir vitnum.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira