Skoðun

Sóknarfæri

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Krabbamein má annaðhvort rekja til gena sem orðið hafa fyrir skemmdum vegna krabbameinsvaldandi efna, eða til handahófskenndra mistaka sem eiga sér stað þegar gen eru afrituð við frumuskiptingu. Þekking okkar, framfarir og tækni eru ljóslega vanmáttug vopn gegn gerræði náttúrunnar. Þannig munum við aldrei útrýma krabbameini, ekki nema með því að raska þeim eiginleikum í líffræði okkar sem eru forsenda velgengni okkar sem tegundar. Krabbamein verður hluti af veruleika okkar svo lengi sem við höldum áfram að fjölga okkur, verða eldri og læknast af sárum okkar.

Baráttan við krabbamein snýst því um forvarnir, skaða­minnkun og bætta umönnun og meðferð fyrir þá sem kljást við sjúkdóminn.

Á dögunum birti Alþjóðakrabbameinsrannsóknastofnunin (IARC) spá sína um þróun krabbameins í heiminum. Samkvæmt spánni mun krabbamein draga um tíu milljónir manna til dauða á þessu ári og ný tilfelli krabbameins verða rúmlega 18 milljónir. Einn af hverjum fimm körlum og ein af hverjum sex konum munu fá krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni.

Jákvæða punkta er að finna í skýrslu IARC, þó svo að sérfræðingar stofnunarinnar dragi sannarlega upp dökka mynd af stöðu mála. Gríðarstór skref hafa verið tekin í nútíma læknisfræði í meðhöndlun krabbameins á undanförnum árum. Þetta eru framfarir sem byggja á þrotlausri vísindavinnu síðustu áratuga. Í skýrslunni er jafnframt að finna mikilvæga áminningu um þau sóknarfæri sem óvirkjuð eru í forvörnum og skaðaminnkun; þeirri hlið krabbameins sem ekki er endilega háð hlutkesti náttúrunnar. IARC bendir á að hægt er að koma í veg fyrir eitt af hverjum þremur til tveggja af hverjum fimm krabbameins­tilfellum á Vesturlöndum með því að stuðla að breyttum lífsstíl og lágmarka þætti í umhverfinu sem valdið geta krabbameini. Þetta er í samræmi við mat Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar um að hægt sé að koma í veg fyrir eitt af hverjum þremur krabbameinum.

Til að stuðla að bættum forvörnum og löngu tímabærri vitundarvakningu um krabbamein þarf samstillt átak á öllum stigum samfélagsins. Hér á landi bíðum við enn eftir því að endanleg krabbameinsáætlun komist til framkvæmda. Sú vinna er langt á veg komin, en það síðasta sem heyrðist um krabbameinsáætlun til ársins 2020 var í júlí í fyrra þegar tillögur ráðgjafarhóps voru birtar.

Engum dylst að hér á landi eru meiriháttar sóknarfæri til staðar. Við vorum lengi vel í fremstu röð við greiningu krabbameina og búum að einhverri ítarlegustu krabbameinsskrá sem fyrirfinnst. Um leið er hér að finna fagfólk mikið í sínum fræðum og öflug sjúklingasamtök. Þá eigum við gríðarlegt safn erfðaupplýsinga sem bíða hagnýtingar í þágu þeirra sem bera stökkbreytingu í erfðum sínum sem auka verulega líkur á banvænu krabbameini.

Hér á landi eru raunveruleg sóknarfæri til staðar. Ekki aðeins tækifæri í formi reynslu, þekkingar og gagnasafna, heldur einnig sóknarfæri sem grundvallast á upplifun lítils samfélags þar sem hvert og eitt ótímabært dauðsfall er ekki aðeins harmleikur, heldur eitthvað sem snertir okkur enn dýpra. Við skuldum afkomendum okkar, og þeim sem háð hafa baráttu við krabbamein, það að nýta þessi tækifæri til hins ýtrasta.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×