Bíó og sjónvarp

Íslenskan í Hollywood

Benedikt Bóas Hinriksson skrifar
Jonah Hill að segja Auðvitað í Maniac.
Jonah Hill að segja Auðvitað í Maniac. Netflix
Í nýjustu þáttaröð Netflix, Maniac, leikur Jonah Hill íslenskan njósnara. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem erlendir leikarar túlka okkur Íslendinga. Fréttablaðið tók saman nokkra eftirminnilega karaktera.

D2: The Mighty Ducks


Hér var nú bara heilt lið af íslendingum að lumbra á amerískum ungmennum í íshokkí. Ísland var gert að mestu óþökkum nánast í kvikmyndasögunni. Þvílíkir óíþróttamenn. María Ellingsen lék Mariu og það heyrðust nokkur íslensk orð.



Eins og þegar vondi þjálfari landsliðs okkar, Wolf Stansson, sagði henni að fara til baka. Núna strax. Okkar besti landsliðsmaður Gunnar Stahl klikkaði illilega í bráðabana sem varð til þess að Bandaríkin unnu okkur á HM. Algjör Skandall.

Emilio Estevez fer á kostum í myndinni þar sem áhorfendur komast að því að Grænland sé stór ísklumpur en Ísland grænt land.
Sense8

Karkterinn Riley úr Sense8 sem Netflix gerði var íslensk. Tuppence Middleton, lék plötusnúðinn sem þurfti að flýja vandræðafortíð sína frá Íslandi þar sem hún hafði átt eiginmann og barn sem létust í bílslysi. Hún heimsótti föður sinn Gunnar hér á landi en komst þá að því að hún átti ekkert að koma aftur. Stórmerkileg sería.

Tuppence Middleton þurfti að flýja klakann.
Justice League

Stórmyndin Justice League var tekin upp hér á landi og Ingvar E. Sigurðsson leikur bæjarstjóra sem spjallar örlítið við sjálfan Batman. Jason Momoa, sem lék Aquaman í myndinni lærði íslensku hjá Ingvari og hleður í setninguna, Nokkuð viss um að hann láti mig hafa þá hvort sem er, þegar honum býðst 25 þúsund dalir fyrir að finna Aquaman.



Ódauðleg sena. Algjörlega stórkostleg.

Það var sannarlega barist um athyglina í Justice League, hvort sem var á Ströndum eða Bandaríkjunum.
Mjallhvít

Trúlega frægasti íslendingurinn. Mjallhvít er íslensk og teiknuð af íslending. Þó sagan sé þýsk er fyrirmyndin íslensk. Í Morgunblaðinu árið 2013 kom fram að Kristín Sölvadóttir frá Siglufirði væri fyrirmyndin og teiknarinn, Karl Stefánsson væri frá Biskupstungum. Sá tók upp nafnið Charles Thorson og teiknaði einnig Kalla Kanínu og fleiri þekktar Disney karaktera. Engin kom þó frá Íslandi.

Mjallhvít og einn dverganna sjö.Einhvers staðar annars staðar voru sex.
Maniac

Jonah Hill leikur Owen Milgrim. Í einum þættinum upplifir Owen sig sem íslenskan njósnara og heitir Snorri Agnarsson. Hann er að undirbúa sig fyrir fund með Sameinuðu þjóðunum. Hill spreytir sig á íslenskunni í þættinum. Segist hafa drepið mann með setningu sem hljómar En ég trap him. Síðar skála þeir í íslensku brennivíni

Í nýjustu þáttaröð Netflix, Maniac, leikur Jonah Hill íslenskan njósnara.
Örlítið meir

Íslenskir viðskiptamenn slógu í gegn í þáttaröðinni Twin Peaks. Héldu Cooper vakandi með því að syngja Öxar við ána og Frost á fróni í sjötta þætti alveg dauðadrukknir. David Patrick Kelly, sem lék Jerry Horne, meira að segja prófar að tala íslensku og segir: Við erum öll íslendingar á mjög bjagaðri íslensku.

Svo má ekki gleyma íslensku víkingunum sem vöknuðu í Baywatch Nights. Ótrúlegar senur sem þar sáust. Lemúrinn skrifaði á sínum tíma stórkostlega grein um ævintýri David Hasselhoff gegn hinum íslensku víkingum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.