Aðgerðum lokið við Goðafoss Elín Margrét Böðvarsdóttir og Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifa 30. september 2018 15:56 Frá vettvangi í dag Vísir/Tryggvi Páll Tryggvason
Aðkomu björgunarsveita er lokið á vettvangi við Goðafoss en þeim lauk um klukkan 15:30 og eru björgunaraðilar eru á leiðinni til síns heima. Þetta segir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við fréttastofu. < Búið er að ná aðilanum úr Skjálfandafljóti og verið að flytja hann á Sjúkrahúsið á Akureyri. Tildrög slyssins eru enn óljós en unnið er að rannsókn. Talið var í fyrstu að maðurinn hefði fallið í ána en síðar kom í ljós að svo var ekki. Um var að ræða erlendan ferðamann sem var í hóp og var ferðafélaga hans farið að lengja eftir honum. Maðurinn fannst á klettum við fljótið með höfuðáverka. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til öryggis vegna aðgerðanna. Lögreglumaður á vettvangi segir að þetta hafi verið umfangsmiklar aðgerðir sem hafi þó tekið skamman tíma. Verið er að flytja manninn á sjúkrahúsið á Akureyri. Hátt í 50 björgunarsveitarmenn úr Eyjafirði og víðar af Norðurlandi eystra voru sendar af stað á fyrsta forgangi. Davíð kveðst ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu og vísar á lögregluna á Norðurlandi eystra. Mikill viðbúnaður var á staðnum þar sem fyrsta tilkynning gaf til kynna að maður hefði lent í vatninu.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Sjá meira