Innlent

Sam­þykktu að slíta kjara­samningum

Agnar Már Másson skrifar
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Vísir/Anton Brink

Stjórn VR hefur ákveðið að slíta kjarasamningum á morgun. Formaðurinn segir að samningar myndu þá renna út í lok mánaðar en þetta geti haft í för með sér að opinberu stéttarfélögin megi einnig segja upp sínum samningum.

„Ég var með fund í stjórn VR þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi.

VR hefur ásamt LÍV og fagfélögunum staðið í kjaradeilu síðustu daga vegna forsendubrests kjarasamninga en frestur til að slíta samningunum rennur út klukkan 16 á morgun, fimmtudag.

Halla nefnir að eftir því sem næst verði komist séu Samtök atvinnulífsins á leiðinni á árshátíð á morgun, eins og greint hefur verið frá, en sömuleiðis kveðst hún ekki synja vilja af hálfu samtakanna til að koma til móts við stéttarfélögin.

„Við erum búin að teygja okkur gríðarlega langt,“ bætir hún við og nefnir að VR hafi boðið fram „hlaðborð af lausnum“ til þess að komast til móts við kröfur SA en að samtökin hafi ekki sýnt sömu viðleitni á móti. Jafnframt tekur hún fram að ríkisstjórnin hafi teygt sig langt og jafnvel einstaka aðildarfyrirtæki innan SA.

„Það er erfitt að vera í samningaviðræðum og vera einn um það að leita lausna.“

Hún gerir því ráð fyrir því að kjarasamningum verði sagt upp á morgun en ef af því verður gætu uppsagnarheimildir sömuleiðis virkjast hjá opinberu stéttarfélögunum.

Samningarnir myndu þá renna úr gildi 31. október og þá taki við nýjar kjaraviðræður þar sem Halla segist munu fara fram á mun stærri kröfur.

„Þá er allt undir,“ bætir hún við.

Halla segir að VR hafi síðast fundað með SA fyrir hádegi og þar hafi fundir verið stuttir og að litlu leyti snúist um að finna lausn á deilunni.

Þó að SA hafi ekki verið formlega upplýst um ákvörðun stjórnar VR að svo stöddu segir Halla að samtökunum ætti að vera ljóst að þetta væri staðan.

„Við erum opin fyrir lausnamiðuðu samtali og það stendur ekki í okkur að finna lausnir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×