Kern segir skilið við stjórnmálin Atli Ísleifsson skrifar 7. október 2018 10:37 Christian Kern gegndi embætti kanslara Austurríkis á árunum 2016 til 2017. Vísir/Getty
Christian Kern, fyrrverandi kanslari Austurríkis, hefur greint frá því að hann hafi sagt skilið við stjórnmálin. Það felur jafnframt í sér að hann stefni ekki lengur að því að gerast arftaki Jean-Claude Juncker í stóli forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Kern lét af embætti leiðtoga austurríska Jafnaðarmannaflokksins í september síðastliðinn. Margir litu svo á að með því stefndi hann að því að verða frambjóðandi hóps Jafnaðarmanna á Evrópuþinginu til embættis forseta framkvæmdastjórnarinnar eftir kosningarnar til Evrópuþingsins á næsta ári. Hinn 52 ára Kern sagði að með því að segja skilið við stjórnmálin nú væri hann að skapa rými fyrir nýjan leiðtoga Jafnaðarmannaflokksins, Pamelu Rendi-Wagner, að byggja upp öfluga stjórnarandstöðu í landinu, án þess að þurfa að standa í „stöðugum skugga“ Kern. Kern tók við embætti kanslara árið 2016 en lét af embætti í kjölfar kosninga 2017. Sebastian Kurz tók við kanslaraembættinu af Kern.
Austurríki Evrópusambandið Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira