Kýpverska lággjaldaflugfélagið Cobalt hefur aflýst öllum áætluðum flugferðum sínum frá og með deginum í dag. Flugfélagið, sem hafði flogið til og frá Kýpur frá árinu 2016, er á vef breska ríkisútvarpsins sagt gjaldþrota eftir að viðræður við mögulega fjárfesta fóru út um þúfur.
Ekki er vitað hvað gjaldþrot flugfélagsins hefur áhrif á marga farþega en alls aflýsti Cobalt 18 flugferðum; níu til Larnaca-flugvallar á Kýpur og níu flugferðum frá vellinum. Alls flaug Cobalt til 23 áfangastaða í Evrópu auk þess sem það flaug til Austurlanda nær.
Samgönguráðherra Kýpur greindi frá því í morgun að ríkisstjórn landsins myndi greiða flugmiða fyrir farþega Cobalt, séu þeir strandaglópar vegna gjaldþrots flugfélagsins. Framtíð allra 200 starfsmanna Cobalt er sögð óljós á þessari stundu.
Flugfélagið segist hafa flutt rúmlega 740 þúsund farþega á þeim 16 mánuðum sem Cobalt var starfrækt. Breska ríkisútvarpinu þykir ekki mikið til þess koma og segir í samanburði að stærsta flugfélag Evrópu, Lufthansa, hafi flutt um 130 milljón farþega á síðasta ári. Þá flutti hið íslenska WOW Air 413 þúsund farþega bara í ágúst síðastliðnum. Icelandair hefur á síðustu mánuðum verið að flytja rúmlega 500 þúsund manns á mánuði á milli áfangastaða.
Þetta er annað evrópska lággjaldaflugfélagið sem leggur upp laupana á síðustu vikum. Í upphafi mánaðarins var greint frá því að hið íslensk-ættaða Primera Air hafi farið fram á gjaldþrotaskipti og þá er rétt rúmt ár síðan að hið breska Monarch Airlines fór í þrot. WOW Air hefur að sama skapi barist í bökkum á undanförnum mánuðum, eins og ítarlega hefur verið greint frá.
