Meðmælavísitalan byggir á Net Promoter Score aðferðafræðinni en meðmælavísitalan byggir, líkt og nafnið bendir til, á mælingum á því hversu líklegir einstaklingar eru til að mæla með (eða hallmæla) fyrirtækjum sem þau hafa átt viðskipti við. Niðurstöður mælinganna gefa því góða tilfinningu fyrir stöðu fyrirtækja á íslenskum markaði enda hafa rannsóknir sýnt að meðmæli eru stór áhrifaþáttur í ákvörðunartöku neytenda um hvort stofna eigi til viðskiptasambands við fyrirtæki.
Fjarðarkaup á toppnum en Costco fellur
Eins og sjá má voru fyrirtækin sem vermdu toppinn á meðmælavísitölunni í ár að miklu leyti þau sömu og voru á lista þeirra 10 efstu í fyrra en þó voru nokkrar breytingar á röðun þeirra. Fjarðarkaup stökk upp í efsta sæti listans og færðist þar með upp fyrir Netflix og Costco sem færðist í 2. sætið í flokki matvöruverslana og 7. sæti í heildarmælingunni.Þá héldu Toyota, IKEA og Nova áfram að bera af í sínum atvinnugreinum en fyrirtækin hafa, ásamt Fjarðarkaupum, verið fastagestir á lista 10 efstu fyrirtækja landsins frá því að mælingar á meðmælavísitölunni hófust árið 2014. Að sama skapi virðist hrifning landsmanna af Netflix streymisveitunni ekkert minnka - en eins og við greindum frá í sumar sögðust tveir af hverjum þremur Íslendingum vera með aðgang að þjónustunni á heimilum sínu. Þá komu vefmiðasölurnar Tix.is og Miði.is sterkar inn í ár og komust inn á lista meðal hinna 10 efstu en vaxandi þjónusta fyrirtækjanna á vefmiðasölumarkaði hefur greinilega lagst vel í landsmenn.

Einnig er athyglisvert að sjá að Krónan fór upp um 18 sæti á milli ára en svo virðist sem að íslenskir neytendur hafi tekið vel í breyttar verslanir og nýjar þjónustuáherslur fyrirtækisins. Ef litið var til þeirra fyrirtækja sem höfðu fallið niður listann frá mælingum síðasta árs mátti sjá að Sports Direct féll um heil 46 sæti á milli ára en eignarhald íslensku verslunarinnar færðist fyrr á árinu alfarið yfir til bresku verslanakeðjunnar sem verslunin dregur nafn sitt af. Þá mátti einnig sjá að Securitas, Norðurorka, Ergo og Lyf og heilsa nutu öllu nokkuð verra gengis nú heldur en í mælingum síðasta árs.
Líkt og fyrri ár hlutu Íbúðalánasjóður og Lánasjóður íslenskra námsmanna slæma útreið hjá almenningi og sátu í tveimur neðstu sætum listans en stofnanirnar tvær hafa vermt botnsæti listans frá því að mælingar hófust árið 2014.
Könnunin náði til 957 einstaklinga. Safnað var á bilinu 133 til 2851 svörum í hverri atvinnugrein. Eru álitsgjafar valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Uppfært 18. október klukkan 20:19
Fréttin hefur verið leiðrétt eftir tilkynningu frá MMR sem sneri að orðalag varðandi fjögur fyrirtæki sem döluðu hvað mest á milli ára. Sá listi hefur verið fjarlægður þar sem breyting á röðun fyrirtækjanna (Securitas, Norðurorka, Ergo og Lyf og heilsa) taldist að mati MMR ekki marktæk milli ára. Þ.e. litlar breytingar gátu orsakað fall um nokkur sæti sem gáfu til kynna dramatískari breytingar en efni stóðu til.
MMR biðst velvirðingar á mistökunum.