Vísitalan, sem greinir sveiflur á hlutabréfamörkuðum 47 ríkja, hefur alls fallið um 9% frá upphafi mánaðarins. Haldi þessi þróun áfram út næstu viku yrði um að ræða verstu fimm vikur MSCI frá því á vormánuðum ársins 2013. Síðasta merkjanlega fall MSCI var í febrúar síðastliðnum.
Óróleika hefur gætt á evrópskum mörkuðum í vikunni, sem rakinn er beint til efasemda á mörkuðum vestanhafs. Hluthafar í bandarískum fyrirtækjum eru sagðir farnir að efast um verðmöt á stærri fyrirtækjum og getu þeirra til að skila áframhaldandi hagnaði á tímum hækkandi stýrivaxta. Þetta, auk áhyggja af mögulegu viðskiptastríðið Bandaríkjanna og Kína, sé hreinlega farið að æra óstöðugan.
Þannig féll þýska Dax-vísitalan um 1,9% í dag, hin franska Cac um 2,4% og FTSE 100-vísitalan í Bretlandi féll um tæp 1,8%. Sú síðastnefnda hefur ekki verið lægri í um sjö mánuði. Þar að aukir hefur Dow Jones fallið um næstum 1,8% og Nasdaq-vísitalan um 3,3%.
Gríðarlegar kröfur
Haft er eftir greinanda frá BaynernLB á vef Guardian að fjárfestar séu farnir að gera miklar hagnaðarkröfur til bandarískra fyrirtækja. Sé ekki staðið undir þeim geti afleiðingarnar verið nokkuð blóðugar, eins og tíðindi gærdagsins bera með sér.Því til stuðnings er bent á að þrátt fyrir að Amazon hafi tilkynnt í gær að hagnaður félagsins á síðasta ársfjórðungi hafi verið 3 milljarðar dala - sem er mesti hagnaður á einum fjórðungi í sögu fyrirtækisins - hafi vöxturinn þó engu að síður verið minni en fjárfestar gerðu ráð fyrir. Því hafi hlutabréf í félaginu fallið um næstum 10 prósent síðastliðinn sólarhring.
Hið sama má segja um Alphabet, en auk ófullnægðra hagnaðarvæntinga höfðu fregnir af kynferðisbrotayfirhylmingum yfirmanna fráhrindandi áhrif á fjárfesta. Fyrir vikið hafi bréf í Alphabet fallið um næstum 5 prósent.