Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon spiluðu allan leikinn er CSKA Moskva tapaði 3-0 fyrir Roma á útivelli í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Þetta var fyrsti byrjunarliðs leikur þeirra beggja í Meistaradeildinni en Arnór hafði komið inn á í fræknum sigri gegn Real Madrid í síðustu umferð.
Tvö mörk frá Edin Dzeko og eitt frá Cengiz Under gerðu út um leikinn fyrir Roma en Arnór nældi sér í gult spjald er ein mínúta var eftir af leiknum.
Roma er með sex stig á toppi riðilsins ásamt Real Madrid en CSKA er í þriðja sætinu með fjögur stig. Á botninum er Viktoria Plzen með eitt stig.
Næsti leikur CSKA er einnig gegn Roma í Meistaradeildinni en liðin eigast við sjöunda nóvember.
Hörður og Arnór spiluðu allan leikinn í tapi í Róm
