Bandaríkin munu rifta kjarnorkusamkomulagi við Rússa Vésteinn Örn Pétursson skrifar 20. október 2018 21:45 Trump hyggst rifta kjarnorkusamkomulagi sem Bandaríkin gerðu við Rússa árið 1987. Vísir/AP
Bandaríkin munu rifta kjarnorkusamkomulagi við Rússland. Þetta staðfesti Donald Trump Bandaríkjaforseti við fjölmiðla vestanhafs í dag. Samkomulagið, sem snýr að kjarnorkuafvopnun og var ætlað að útrýma meðaldrægum loftskeytum búnum kjarnaoddum, var undirritað árið 1987 af Ronald Reagan, þáverandi Bandaríkjaforseta, og Mikhail Gorbachev, þáverandi aðalritara Kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Ástæðuna sagði Trump vera að Rússar hafi brotið samkomulagið þegar þeir skutu skeytum sem samkomulagið nær til í tilraunaskyni. Þá sagði Trump að Bandaríkin myndu ekki láta Rússa komast upp með að nota slík vopn meðan Bandaríkjunum er bannað að gera slíkt hið sama. Trump lét þessi orð falla þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir kosningafund í Nevada-fylki í Bandaríkjunum. Forsetinn furðaði sig þá á því hvers vegna forveri hans í starfi, Barack Obama, hafi haldið samkomulaginu í heiðri. „Ég skil ekki hvers vegna Obama endursamdi ekki eða rifti samkomulaginu. Þeir [Rússar] hafa vanvirt það í fleiri ár.“ Rússar neita staðfastlega að hafa nokkurn tíma brotið gegn samkomulaginu.
Bandaríkin Donald Trump Rússland Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Sjá meira