Mourinho: Við erum ekki lið sem gefst upp Henry Birgir Gunnarsson skrifar 9. nóvember 2018 13:00 Mourinho á fundinum í morgun. vísir/getty
Það var óvenju létt yfir Jose Mourinho, stjóra Man. Utd, á blaðamannafundi sínum í dag enda svífur hann enn um á bleiku skýi eftir stórkostlegan sigur sinna manna á Juventus í vikunni. „Við erum ekki lið sem gefst upp. Við erum lið sem finnur alltaf leið til þess að koma til baka. Stundum náum við að snúa úrslitum okkur í hag en stundum gengur það ekki,“ segir Mourinho. „Það er mikill baráttuandi í okkar hópi en stundum er það ekki nóg. Við verðum að fækka mörkum sem við fáum á okkur og verðum líka að byrja leikina betur en við höfum verið að gera til þessa. „Við gerðum það gegn Juve og stýrðum leiknum fyrstu 15-20 mínúturnar. Svo fengum við á okkur mark á 60. mínútu eða álíka en gáfumst ekki upp.“ Um helgina er risaleikur hjá Man. Utd er liðið sækir Man. City heim. City hefur verið milli tannanna á fólki vegna umfjöllunar Der Spiegel um félagið en Mourinho vildi lítið tala um það. „Man. City er mjög öflugt lið. Ég get ekki verið að tjá mig um hluti hjá þeim á meðan ég einbeiti mér að mínu starfi. Ég get aftur á móti talað um gæðin þeirra á vellinum sem eru mikil. Til að fá mikil gæði þarf að fjárfesta,“ sagði Portúgalinn. „Ég vil ekki tala um stöðuna eins og hún verður kannski eftir leikinn. Ég get bara hugsað um leikinn sem er nógu erfitt verkefni. Þetta er gríðarlega erfitt verkefni og ég veit að þeir líta ekki á þetta sem auðveldan leik fyrir þá.“
Enski boltinn Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Íslenski boltinn Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út Körfubolti Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Íslenski boltinn Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Golf Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Enski boltinn „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport Boxari látinn 33 ára: Varð fyrir alvarlegum heilaskaða í bardaga Sport Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Fótbolti „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Fleiri fréttir Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Sjá meira