Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Aron Guðmundsson skrifar 10. september 2026 15:47 Arteta virðist ekki á förum frá Arsenal í bráð Vísir/Getty Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Arsenal, er nálægt því að skrifa undir nýjan samning við félagið.
Það er BBC sem greinir frá og segir viðræður félagsins við Spánverjann ganga vel. Heimildir miðilsins herma að viðræðurnar hafi þokast hratt áfram upp á síðkastið og eru forráðamenn Arsenal fullvissir um að Arteta muni skrifa undir nýjan samning. Arteta hefur sjálfur lýst yfir vilja sínum til að halda áfram verkefni sínu í Norður-Lundúnum. „Minn vilji er að vera hér þar sem að ég er mjög ánægður. Bæði ég og félagið erum á sama stað hvað það varðar. Þess vegna hefur þetta þokast áfram í náttúrulegu ferli,“ sagði Arteta á blaðamannafundi um samningsstöðuna á dögunum. Búist er við því að Arteta muni með nýja samningnum verða einn launahæsti knattspyrnustjóri í heimi. Arteta er nú þegar sá stjóri af núverandi knattspyrnustjórum í ensku úrvalsdeildinni sem hefur verið lengst í starfi. Arsenal varð Englandsmeistari undir hans stjórn í fyrsta skipti á síðasta tímabili og ætlar sér að reyna að verja titilinn og sækja fram í Meistaradeildinni þar sem liðið tapaði í vítaspyrnukeppni í úrslitaleik gegn PSG á síðasta tímabili. Arteta tók við stjórnartaumunum hjá Arsenal í desember árið 2019 og núgildandi samningur hans rennur út næsta sumar. Undir hans stjórn hefur Arsenal orðið Englandsmeistari sem og enskur bikarmeistari. Þá hefur liðið í þrígang unnið Samfélagsskjöldinn.
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Sport Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Enski boltinn Fleiri fréttir Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Sjá meira