Segir leikmenn Man Utd fela sig fyrir Mourinho eftir tapleiki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. nóvember 2018 09:30 Jose Mourinho á æfingasvæðinu. Vísir/Getty
Nemanja Matic ræddi aðeins knattspyrnustjórann sinn Jose Mourinho í viðtali við Sky Sports fyrir leik Manchester United og Juventus í Meistaradeildinni í kvöld. Serbneski miðjumaðurinn þekkir portúgalska stjórann vel enda hefur hann spilað fyrir hann hjá bæði Chelsea og Manchester United. Matic segir að Jose Mourinho sé mjög tapsár en er á því að það sé gott fyrir ensku úrvalsdeildina að hann skuli starfa sem knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United er aðeins í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir ellefu leiki og eru nú níu stigum á eftir nágrönnum sínum í Manchester City. Liðin mætast um næstu helgi. United hefur nú unnið tvo leiki í röð og það er því aðeins léttara yfir mönnum á Old Trafford. Nemanja Matic hrósar Jose Mourinho. „Hann er frábær persóna. Hann er allt annar maður utan vinnu og utan vallar,“ sagði Nemanja Matic. „Það er mikil pressa á honum því allir búast við því að liðin hans vinni. Þegar við vinnum ekki bíða allir eftir að sjá viðbrögðin hans. Hann elskar að vinna en þegar við vinnum ekki þá felum við okkur fyrir honum á æfingasvæðinu,“ sagði Nemanja Matic í viðtalinu við Sky Sports.#ماتيتش: عندما لا يفوز #مانشستر_يونايتد نختبئ من #مورينيو في التدريبات https://t.co/ZMNPlufvfy — Yahoo مكتوب رياضة (@MaktoobSports) November 6, 2018„Hann er ánægður þegar við vinnum en eins og allir knattspyrnustjórar þá krefst hann þess að við gerum betur þegar við töpum. Hann reynir að finna leiðir til að breyta þeirri þróun sem fyrst,“ sagði Matic. „Eitt er þó öruggt að hann hefur breytt miklu í ensku úrvalsdeildinni síðan að hann kom í deildina. Enska úrvalsdeildin hefur verið mun áhugaverðari með hann innanborðs,“ sagði Matic.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Leik lokið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Handbolti Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Noregur - Danmörk 3-2 | Fyrsti sigurinn á Dönum í 26 ár Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Fleiri fréttir Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Sjá meira