Stjörnuspá Siggu Kling – Nautið: Eins og það komi "error“ í ástarorkuna Sigga Kling skrifar 2. nóvember 2018 09:00
Elsku Nautið mitt, það er svo sannarlega ekki allt sem sýnist í kringum þig og áhyggjur eru óþarfar, þú færð meira en augað sér og þá sérstaklega í sambandi við ást og tilfinningar. Það er svo í eðli þínu að loka inni erfiðleika og standa bara keikur alveg sama hvað gengur á. Þá getur maður fengið einskonar kulnun, ég þoli þetta orð reyndar ekki svo ég ætla frekar að nota orðið uppgjöf sem er bara eins og að vera uppgefinn. Þú ert að fara að keyra allt í gang, keyrum þetta í gang er setningin þín og næstu mánuðir munu líða eins og örskot. Þú ert svo mikið jólabarn og því fyrr en seinna er betra fyrir þig að setja mikið af ljósum upp, því ljós eru sérlega hressandi fyrir Nautin, en það eru til Naut sem hata jólin og ástæðan fyrir því liggur í fortíðinni. Ef þú ert í þeim hópi taktu þá einskæra ákvörðun um að læra að elska þau (jólin), það er það eina sem þú þarft. Það verður mikið að gera hjá þér svo hættu alveg að fresta því sem þú þarft að gera, segðu bara við sjálfan þig, ég ætla að klára þetta núna, þú skalt bretta upp ermarnar, því hálfnað verk þá hafið er! Þvílíkt dásemdartímabil verður í kringum þig og þú átt eftir að taka eftir því hvað þú ert virkilega heppin; alltaf þegar þú sérð þú ert það segðu þá: Mikið rosalega er ég heppin! – Og þá verðurðu enn heppnari. Þú hefur þann hæfileika að geta tekið mikla áhættu og fá góða niðurstöðu, en svo eru líka til þau Naut sem nenna því ekki og það er bara allt í lagi, því það sem gerir þig hamingjusama er það sem skiptir máli. Þú verður sjaldan ástfangin, en þegar ástin hittir þig er það yfirleitt til eilífðar, en ef hún særir þig þá er eins og það komi „error“ í ástarorkuna þína og þú vilt bara alls ekki gefa færi á þér. Það er líka þannig að ef þú særist þá nennirðu ekki að taka áhættu með annarri manneskju og lokar fyrir þessar tilfinningar. Þú ert með yfirnáttúrulegt seiðandi afl í kringum þig, alveg sama hvort kílóin eru fá eða mörg, sjálfstraustið lítið eða stórt, svo þú getur á þessum fallega vetri leyft ástinni að koma til þín, því hvergi er hún í raun eins örugg og hjá þér. En aldrei láta afbrýðisemi hvar svo sem þú ert staddur í lífinu stjórna þér, því það mun stoppa það flæði sem er í boði, svo notaðu töfrana, punktur! Knús og kossar, þín Sigga KlingFræg Naut: Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska knattspyrnulandsliðsins, Hannes Þór Halldórsson markvörður, Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður, Svali Kaldalóns fjölmiðlamógúll, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, rithöfundur og latikokkur, Ellý Ármanns fjölmiðlakona, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri, Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður, Ólafur Ragnar Grímsson, Álfheiður Ingadóttir þingkona, Halldór Laxness, rithöfundur og skáld, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Garðar Thor Cortes söngvari, Helga Möller söngkona, Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfit-meistari, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, Pétur Jóhann Sigfússon, Addi Exos dj-snillingur, Davíð Rúnar Bjarnason, boxari, Þórunn Pálsdóttir fasteignasali.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Lífið „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Lífið Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum Lífið Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Tíska og hönnun Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker Lífið „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Lífið Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Fleiri fréttir Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Sjá meira