Tobias Thomsen aftur í KR Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. desember 2018 10:40 Tobias Thomsen stóð sig vel hjá KR 2017 og er kominn aftur. vísir/stefán
Danski framherjinn Tobias Thomsen er genginn aftur í raðir KR en hann kemur í vesturbæinn að þessu sinni frá Val þar sem að hann spilaði síðasta sumar.Frá þessu er greint á heimasíðu KR en þar segir að framherjinn sé nú þegar byrjaður að æfa með liðinu og að hann „sé viðbót við þá sem þegar hafa komið.“ Tobias fór mikinn með KR á sinni fyrstu leiktíð á Íslandi en hann skoraði níu mörk í 22 leikjum í Pepsi-deildinni og fjögur mörk í þremur leikjum í Mjólkurbikarnum, í heildina þrettán mörk í 25 leikjum. Danski framherjinn skoraði sigurmark Vals á móti KR í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð í uppbótartíma og fagnaði gríðarlega en það varð á endanum eina mark hans fyrir Val í deildinni síðasta sumar. Tobias spilaði í heildina fjórtán leiki í deild og þrjá í bikarnum fyrir Val þar sem að hann skoraði sömuleiðis eitt mark en hann var meira og minna varamaður fyrir markahrókinn Patric Pedersen. Tobias Thomsen, sem verður 27 ára gamall á næsta ári, er fjórði leikmaðurinn sem að KR fær til sín eftir síðustu leiktíð. Áður voru komnir Víkingarnir Alex Freyr Hilmarsson og Arnþór Ingi Kristinsson auk Ægis Jarls Jónassonar sem kom frá Fjölni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Fótbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Fótbolti Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Fótbolti Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjá meira