Viðburðurinn er auglýstur á Facebook-síðu Cafe Orange í Ármúla 4 þar sem veislan fer fram. Um er að ræða þriggja rétta hátíðarkvöldverð auk þess sem jólagjafir verða í boði fyrir þá sem verða ekki með fjölskyldum sínum á aðfangadagskvöld. Geir Ólafsson söngvari hefur boðað komu sína.
„Þetta var eiginlega bara hugmynd hjá pabba. Mér fannst hún góð og langaði að gera þetta þótt ég væri aðeins efins í fyrstu,“ segir Viktor. Pabbi hans þekki af ýmsum ástæðum hvernig það sé að vera einn um jólin.
„Hann langaði bara til að halda veislu!“
Bergleif rekur Cafe Orange ásamt Tómasi Hilmar. Staðurinn tekur að sögn Viktors um 40 manns en þeir reikna með að geta tekið 50 manns í mat.
„Við ætlum að gera eins mikið og við getum og reyna að koma eins mörgum fyrir og við getum,“ segir Viktor. Það sé erfitt að segja nei við fólk á þessum degi.
Viktor segir nokkra hafa boðað komu sína síðan viðburðurinn var auglýstur á miðvikudaginn. Hann vill þó fylla staðinn.
„Fólk virðist feimið við að hringja. Við viljum koma því á framfæri að þetta er ekkert mál og höfum algjöran skilning á því að fólk þarf á hjálp að halda,“ segir Viktor.
Hann þakkar hlýjar viðtökur og þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem leggja hönd á plóg.