Við Paul Þorvaldur Gylfason skrifar 20. desember 2018 07:00 Reykjavík – Fundum okkar Pauls McCartney bar fyrst saman haustið 1971 eins og ég lýsti hér á þessum stað í vetur leið (Minning frá Manchester, 15. febrúar 2018). Hann kom í mötuneyti okkar stúdentanna í Manchester án þess að gera boð á undan sér. Hann spurði hvort þau mættu syngja og spila fyrir okkur í hádeginu, þau voru þrjú eða fjögur saman. Sumir matargestanna litu varla upp.Nýgild og nákvæm tónlist Bítlarnir voru þá nýskildir að skiptum. Margir kenndu Paul um skilnaðinn (hann ber sökina af sér) og sýndu nýja bandinu hans, það hét Wings, lítinn áhuga líkt og börn nýskilinna hjóna eiga það til að taka nýjum fósturforeldrum fálega. John Lennon gerði gys að fyrstu plötu Pauls eftir skilnaðinn. Þeir fornvinirnir sættust síðar. Paul minnist fallins félaga síns oft og með mikilli hlýju, samdi fallegan minningarsöng um hann og flytur stundum lögin hans á tónleikum. Ég kynntist tónlist þeirra félaga fyrir fermingu líkt og flestir jafnaldrar mínir og hef fylgzt með henni síðan. Paul var og er minn maður í bransanum, nánar tiltekið í því sem Jakob Frímann Magnússon kallar nýgilda tónlist til aðgreiningar frá sígildri tónlist en hana vildi Leonard Bernstein heldur kalla nákvæma tónlist af því að hún er skrifuð niður tón fyrir tón. Paul kann hvorki að lesa né skrifa nótur. Það er ekkert sérlega sígilt við sígilda tónlist, sumt af henni gengur úr sér eins og annað, sagði Bernstein sem hefði orðið 100 ára í ár.Samvizka eða súkkulaði? Á unglingsárum mínum mátti með nokkurri einföldun skipta ungu fólki í tvo flokka, þau sem tóku Bítlana fram yfir Rolling Stones og hin. Fyrri flokknum mátti svo aftur skipta í tvo undirflokka, þau sem tóku John fram yfir Paul og okkur hin. Ég tilheyrði sem sagt flokki 1B. Flokkarnir töluðust við. Ég gaf Gesti Guðmundssyni, nú prófessor í félagsfræði, plöturnar mínar með Rolling Stones. Hann átti löngu síðar eftir að rita Rokksögu Íslands. Þau sem voru í flokki 1A virtust sum líta á John sem samvizku heimsins; hinn var bara súkkulaði, sögðu þau sum, og áttu þá við útlitið, málflutninginn og músíkina. Þau tóku ekki eftir því, og það gerði ég ekki heldur fyrr en nýlega, að þegar bandarískir blaðamenn spurðu Bítlana nýkomna til Bandaríkjanna 1964 hvað þeim fyndist um stríðsrekstur Bandaríkjamanna í Víetnam, þá var það ekki John heldur Paul sem tók af skarið og sagðist vera andvígur stríðinu. Bandarískir mótmælasöngvarar stigu um líkt leyti fram af fullum þunga – Bob Dylan, Joan Baez, Peter, Paul og Mary o.fl. – og beittu sér gegn Víetnamstríðinu líkt og þau studdu réttindabaráttu blökkumanna. Nokkru síðar samdi Paul lagið Blackbird til stuðnings blökkumönnum. Hann er grænmetisæta. Hann segir: Ef sláturhús hefðu glerveggi værum við öll grænmetisætur.600 sönglög Við vorum á ferð um Suðurland hjónin fyrir mörgum árum, komum á Hvolsvöll undir kvöld og sáum þar handskrifað skilti neglt á ljósastaur: Hljómar skemmta í kvöld, húsið opnar kl. 11. Við vorum mest hissa á því hvað þeir ætluðu sér að vaka, menn á miðjum aldri. Paul McCartney þeysist nú um heiminn ásamt félögum sínum til að halda 34 tónleika á 30 stöðum í 13 löndum. Við heyrðum hann í Vín í byrjun desember. Hvort hann gat vakað! Hann er 76 ára, söng 36 lög af lífs og sálar kröftum á þrem klukkustundum og dró hvergi af sér tvö kvöld í röð. Hann þarf ekki á þessu flandri að halda. Hann er ríkasti tónlistarmaður Bretlandseyja, þrisvar til fjórum sinnum ríkari en Mick Jagger og Ringo Starr. Hann er skráður höfundur tæplega 600 sönglaga. Franz Schubert er til samanburðar skráður höfundur 1.500 tónverka, þ.m.t. um 600 sönglög, og hann féll frá á 32. aldursári.Frá Rauða torginu til Grand Central Station Paul McCartney hélt fyrstur manna rokktónleika á Rauða torginu í Moskvu. Til hans að tjaldabaki kom einn ráðherrann í ríkisstjórninni í Kreml eftir konsertinn og sagði: Þakka þér fyrir. Við lærðum ensku með því að hlusta á bítlaplöturnar. Hann hefði getað bætt því við að þær voru bannaðar á valdatíma kommúnista, menn þurftu að smygla þeim milli kjallara til að komast í þær. Fyrir fáeinum vikum gerðist það á Grand Central Station á miðri Manhattan-eyju í New York að glaðlegur maður bankaði í hljóðnema og sagði við fólksmergðina á stöðinni líkt og okkur stúdentana í Manchester forðum: Ég heiti Paul McCartney. Megum við félagarnir taka fyrir ykkur nokkur lög? – m.a. af nýju plötunni okkar, Egypt Station. Hófst svo söngurinn. Diskurinn fær góða dóma og selst vel. Mér finnst hann fínn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Þorvaldur Gylfason Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar