Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar 30. október 2026 16:02 Málavextir eru þeir að ég var að aka norður Vesturlandsveg, í samfloti við bróður sem ók á undan mér og vorum við komnir á mót við Álfhólsskóg norðan Akrafjalls þegar bróðir minn ók fram úr svartri bifreið, sem var á um 75 til 85 km/klst og ég fylgdi á eftir. Þessi framúrakstur var með öllu venjulegur og ekkert kom upp á sem hættulegt gat talist. Eftir að ég var kominn inn á minn vegarhelming mætti ég fyrsta bílnum sem kom á móti en svo veit ég ekki fyrr en bíllinn þar á eftir kveikir á bláum viðvörunarljósum en þar var þá lögreglan á ferðinni. Bróðir minn sem á undan fór varð einnig var við ljós lögreglubílsins og taldi að verið væri að stöðva sig fyrir að hafa ekið of hratt þegar hann fór fram úr hægfara bílnum. Stöðvaði hann því við Akranesafleggjarann og ég fyrir aftan hann og síðan kom lögreglubíllinn og stöðvaði fyrir aftan okkur. Í lögreglubílnum var lögreglumaður og lögreglukona og var maðurinn ökumaður lögreglubifreiðarinnar en lögreglukonan sat í farþegasæti og hafði sig ekki í frammi. Í ljós kom að lögreglumaðurinn vildi ekkert við bróður minn tala en bar upp á mig að ég hefði framið umferðarlagabrot með því að aka óvarlega og skapa hættu við framúrakstur. Mótmælti ég því og benti á vitni sem bæði var farþegi í mínum bíl og bróðir minn sem ók á undan og fylgdist með framúrakstri mínum í baksýnisspeglinum og sá ekkert athugavert á ferðinni. Þá sagði ég við lögreglumanninn að hann hefði ekki getað séð þetta með óyggjandi hætti enda bíll á milli okkar og hans. Fjarlægðin var of mikil fyrir hann til að sjá hversu langt bil var á milli mín og bílsins sem ég var að mæta. Lögreglumaðurinn gerði ekkert með mín andmæli og hafði engan áhuga á þessum vitnum og kvaðst skrifa um málið lögregluskýrslu og var allur hinn valdsmannlegasti í allri framgöngu og bar sig eins og hann hefði gómað stórhættulegan ökumann. Nokkru síðar fékk ég sektarboð frá Lögreglustjóranum á Vesturlandi og jafnframt rukkun upp á 20.000 kr. í minn heimabanka og tilkynningu um einn svartan punkt í ökuferilskrá. Jafnframt kom fram að ef ég greiddi innan 4 vikna fengi ég 20% lækkun á sektina. Þótt sektin væri ekki há fannst mér súrt að kyngja þessu þar sem ég var sannfærður um að ég hefði ekki á nokkurn hátt framið refsivert umferðarlagabrot með þessum framúrakstri. Þá tók ég eftir því að í sektarboðinu var ég sagður hafa verið á bíl bróður míns en ekki mínum eigin sem mér fannst bera vitni um óvönduð og hroðvirknisleg vinnubrögð. Fór ég því fram á að fá senda lögregluskýrsluna til að sjá hvernig hægt hefði verið að búa til umferðarlagabrot úr þessu máli. Kom hún að lokum eftir nokkrar ítrekanir og einnig var myndband sent á lögreglustöð svo ég gæti séð upptöku af atvikinu sem lögreglubifreiðin tók upp. Í skýrslunni segir lögreglumaðurinn: “Ég var við almenn löggæslustörf á Vesturlandsvegi á lögreglubifreiðinni XXX ásamt XXX. Þar sem við ókum Vesturlandsveginn við Álfhólsskóg til suðausturs sáum við hvar bifreiðinni XXX var ekið á móti lögreglubifreiðinni á öfugum vegahelmingi, með þeim afleiðingum að skýrsluritari þurfti að snögghemla til að varna árekstri. Gaf ég ökumanni því merki að stöðva aksturinn með bláum forgangsakstursljósum lögreglubifreiðarinnar, sem hann gerði…..“ XXXXX__Lögm. no____H1477 og 2467 Skýrslan var kolröng. Ég ók aldrei beint á móti lögreglubílnum svo hann var ekki að forða árekstri við mig. Þá sýndi myndbandið glögglega að ávallt var bíll á milli mín og lögreglubílsins meðan á framúrakstrinum stóð og lögreglumaðurinn gat því ekki þurft að nauðhemla til að forðast árekstur við mig. Ég vildi illa una þessu og reyndi því að hringja í lögreglumanninn sem sér um sektarboðun hjá Lögreglustjóranum á Vesturlandi sem hafði sent mér lögregluskýrsluna og myndbandið. Þar sem viðkomandi svaraði mér ekki í síma sendi ég honum eftirfarandi bréf: „Sæll XXXX, en það var hann sem sendi mér myndbandið og skýrsluna. Hef verið að reyna að ná í þig í síma nú í dag út af skýrslunni sem þú sendir mér og á að lýsa framúrakstri mínum á Vesturlandsvegi við Álfhólsskóg þann 28.05.2026, kl. 13:05. Erindið er að segja þér frá því að skýrslan er alröng í frásögn sinni um það sem í raun gerðist. Þegar ég ók fram úr svartri bifreið á eftir bróður mínum (XXXX) kom á móti mér sendibifreið sem enn var í langri fjarlægð og mættumst við án nokkurra truflana, en þegar ég er kominn vel inn á minn vegarhelming þá sé ég lögreglubíl kveikja á bláum ljósum og þá enn í minnst 100-150 metra fjarlægð frá mér. Þessa atburðarás sýnir myndbandið mjög vel og þeir sem sáu það með mér eru því sammála. Að halda því fram að lögreglubifreiðin hafi þurft að nauðhemla vegna mín eru alger ósannindi, enda bifreið á milli mín og lögreglunnar. Að sætta sig við ákæru að ósekju er fyrir mig, sem frjálsan borgara í þessu landi og með óflekkaðan ökuferil í 69 ár, alveg óþolandi og ærumeiðandi. Nú vil ég biðja þig, XXXX að benda mér á hvert ég get farið með þetta mál í einhvers konar úrskurðarnefnd til að fara yfir skýrslu lögreglunnar til að fá hið rétta fram.“ Það er skemmst frá því að segja að viðkomandi svaraði ekki bréfinu. Þess vegna fékk ég góðan lögmann til að kíkja með mér á myndbandið, sem var geymt á lögreglstöðinni, því það er leyndarmál og ég má ekki fá afrit af því. Lögmaðurinn sá strax að skýrsla lögreglumannsins var tómt rugl. Þar er því lýst að lögreglubíllinn hafi mætt mér beint, en bíllinn sem var á milli okkar er ekki nefndur: “XXXX var ekið á móti lögreglubifreiðinni á öfugum vegahelmingi, með þeim afleiðingum að skýrsluritari þurfti að snögghemla til að varna árekstri.” Lögmaðurinn sendi Lögreglustjóranum í Borgarnesi eftirfarandi bréf: „Lögreglustjórinn á Vesturlandi Sent á XXXX Vísað er til þessa máls Ég mætti á lögreglustöðina í XXXX fyrir skömmu og fékk að sjá myndband úr lögreglubifreiðinni sem var á vettvangi í umrætt sinn þann 28.05.2026. Óskað er eftir því að lögreglustjórinn á Vesturlandi felli niður sektarboð í málinu. Bent er á eftirfarandi því til stuðnings að ekki sé rétt að sekta Guðmund Guðjónsson. Í frumskýrslu er bifreið Guðmundar Guðjónssonar ranglega skráð XXXX en það er bifreið bróður Guðmundar en þeir voru í samfloti og keyrði Guðmundur á bifreiðinni XXXX. Eigandi XXXX hefur ekki fengið sektarboð, enda ekki brotið gegn 23. gr. umferðarlaga. Í frumskýrslu segir: bifreiðinni XXXX var ekið á móti lögreglubifreiðinni á öfugum vegarhelmingi, með þeim afleiðingum að skýrsluritari þurfti að snögghemla til að varna árekstri (þá væntanlega við bifreiðina XXXX). Eftir að hafa skoðað myndbandið sést að annar bíll er á milli lögreglubifreiðarinnar og bifreiðarinnar XXXX og hann hægir á sér en lögreglubifreiðin snögghemlar ekki. Bifreiðin XXXX er því ranglega sögð hafa ekið á móti lögreglubifreiðinni. Guðmundur Guðjónsson ökumaður XXXX fylgdi bifreiðinni XXXX í framúrakstri og gekk úr skugga um að það væri án hættu og telur því að hann hafi ekki brotið gegn 23. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og óskar því eftir að málið verði fellt niður. Ef ekki er fallist á niðurfellingu er óskað rökstuðnings áður en málið fer lengra, vinsamlega sendið það til mín í tölvupósti en ég hef sent embætti lögreglustjórans umboð Guðmundar til mín. Áskilinn er réttur til að leggja þessi tölvupóstsamskipti fram í sakamáli fari málið lengra.“ Embættið svaraði bréfi lögmannsins eftirfarandi: Eftir yfirferð á málinu, þ.m.t. myndbandinu sem þú vísar í, er niðurstaðan sú að sektarboð standi þar sem við teljum að ökumaður XXX… hafi valdið hættu fyrir umferð með framúrakstri sínum. Eftir þetta svar ræddi ég við lögmanninn um hvað gera skyldi. Hans álit var að helmingslíkur væru á því hvort ég mundi vinna málið, dómarinn gæti alveg eins fallist á að framúraksturinn hafi skapað hættu og þar með dæmt mig sekan þrátt fyrir rangar upplýsingar í skýrslu lögreglumannsins. Ég fékk því annan lögmann til að skoða myndbandið og álit hans var, að sök mín væri engin og skýrsla lögreglumannsins væri bara gerð til að koma á mig sök. Hitt væri svo annað mál hvort einhver dómari myndi dæma lögreglunni í hag eða mér, væri spurning. Hann bætti svo við að reynslan væri nú sú að flestir dómarar tækju málstað lögreglunnar fram yfir einstaklinga og því væri það stór spurning hversu skynsamlegt það væri fyrir mig að fara út í málarekstur fyrir aðeins 20.000 krónur og einn svartan punkt í ökuferilinn. Ég varð hugsi yfir þessari skoðun lögmannsins en hef þó heyrt oftar en einu sinni eitthvað álíka um þessa hluti. Hef ég því fallist á rök lögmannsins og borgað sektina en með mikið óbragð í munni. En það, að lögregla á vettvangi skuli hafa sjálfdæmi um að ákveða hvort þessi eða hinn sýni einhverja hættu í umferðinni er alveg makalaust. Það er vandalaust að sekta fyrir of hraðan akstur, hraðinn kemur fram á mælitækjum og að leggja vitlaust eða illa er líka mælanleg eining og margt fleira. En að einhverjum sé gefið það vald að geta sagt: mér finnst að þú hafir gert þetta eða hitt án þess að hægt sé að sannreyna það á nokkurn hátt hvort sé satt eða rétt, á ekki að vera hægt í lýðræðisríki. Og síðan megi svo þessi sami aðili ákveða peningasekt á viðkomandi fórnarlamb sitt, er auðvita galið. Í Senatinu í Róm á fyrstu öld f.Kr. var deilt um hver ætti að vakta varðmanninn svo hann geri allt satt og rétt. (Quis custodem custodiet, ut ille veraciter recteque agat?) en það var ekki ljóst hjá þeim á þeim tíma. Í Borgarnesi er það alveg ljóst að það er lögreglustjórinn sem á að vakta sinn varðmann svo hann geri allt satt og rétt. Hann á að brýna fyrir sínum varðmanni að hann megi ekki fara út á vegina með það í huga að finna sér fórnarlamb til að skella á það sektir, koma svo heim til húsbónda síns og sýna honum hversu marga hann gómaði og hversu miklu hann náði að safna í sjóðinn. Því vil ég segja við lögregluna í Borgarnesi: Munið að lesa hvað stendur á “skjaldarmerki” lögreglunnar. Guðmundur H Guðjónsson Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun