Fjárfestingarsjóður í stýringu American Funds, dótturfélags bandaríska eignastýringarfyrirtækisins Capital Group, bætti nýverið við hlut sinn í Marel með kaupum á hlutabréfum í félaginu fyrir um 810 milljónir króna, samkvæmt nýlegum lista yfir stærstu hluthafa Marels. Eftir kaupin er sjóðurinn tíundi stærsti hluthafinn með 1,92 prósenta hlut.
Umræddur sjóður, Smallcap World Fund, kom fyrst inn í hluthafahóp Marels síðasta vor ásamt sjóðnum American Fund Insurance Series, sem er jafnframt í stýringu American Funds.
Smallcap World Fund hlutabréfasjóðurinn keypti til að byrja með rúmlega 2,9 milljónir hluta í Marel en hann hefur bætt við sig jafnt og þétt í félaginu á undanförnum mánuðum.
Í seinni hluta desembermánaðar átti sjóðurinn liðlega 10,8 milljónir hluta eða sem nemur um 1,59 prósenta eignarhlut. Í kjölfar síðustu kaupanna fer sjóðurinn með 13,1 milljónar hluta í Marel að virði um 4,8 milljarðar króna, sé miðað við núverandi gengi hlutabréfa félagsins.
Bandaríska fyrirtækið Capital Group, eitt stærsta og elsta eignastýringarfyrirtæki í heiminum, er samtals með eignir í stýringu að jafnvirði um 1,7 þúsund milljarðar Bandaríkjadala.
Hlutabréfaverð Marels hækkaði um tæp 15 prósent í fyrra og miðað við núverandi gengi bréfa félagsins, sem er 385 krónur á hlut, nemur markaðsvirði þess um 247 milljörðum króna.
800 milljóna kaup í Marel
![Hlutabréf í Marel hækkuðu um tæp 15 prósent í verði í fyrra.](https://www.visir.is/i/CECAC4BF0980AD29342ED32B964598E6B2FB4C78144A468396F69AEB1898707D_713x0.jpg)
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/7AC89A204A4E488971B77CA813953D4ADE2AF289E2FA4289EC502E0208068DFE_308x200.jpg)
Krefjandi aðstæður fyrir tvíhliðaskráningu Marels
Markaðsvirði keppinauta Marels, sem skráðir eru í kauphallir erlendis, lækkaði um 20-30 prósent á liðnu ári.
![](https://www.visir.is/i/6C49809BB02C85BE8714A2AF1B5D0C3D8C77632F08A4BE5767E8B354550F9C53_308x200.jpg)
Marel sagt vera á leið í dönsku kauphöllina
Marel er sagt vera með það til alvarlegrar skoðunar að skrá félagið í Kauphöllina í Kaupmannahöfn að því er fram kemur í frétt Berlingske Tidende. Félagið hefur haft tvíhliða skráningu til skoðunar í nokkrum evrópskum kauphöllum.