Viðskipti innlent

Minni á­fengis­neysla í takt við mark­mið ríkisins

Birgir Olgeirsson skrifar
Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR, segir minni áfengisneyslu samræmast markmiðum ríkisins. Óljóst sé þó hversu mikið minni neysla skýri sölusamdrátt Vínbúðanna.
Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR, segir minni áfengisneyslu samræmast markmiðum ríkisins. Óljóst sé þó hversu mikið minni neysla skýri sölusamdrátt Vínbúðanna. Vísir/Arnór Trausti

Sala áfengis í Vínbúðunum dróst saman um 7,5 prósent í lítrum talið fyrstu níu mánuði ársins, að sögn forstjóra ÁTVR. Hún hefur ekki gögn sem skýra hversu mikið samdrátturinn tengist minni áfengisneyslu og hversu mikið því að viðskiptin hafi færst annað.

Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR, segir breytingar hafa orðið á áfengismarkaðnum með tilkomu fjölmargra netverslana. Þær hafi væntanlega náð til sín markaðshlutdeild undanfarin ár. Hún geti þó ekki fullyrt um skýringar á minni sölu Vínbúðanna.

ÁTVR kynnti í dag hagræðingaraðgerðir sem eiga meðal annars að bregðast við sölusamdrættinum. Áætlað er að þær skili um 150 milljóna króna árlegum sparnaði þegar þær hafa komið að fullu til framkvæmda.

Neysla á mann minnkaði en heildarmagnið jókst

Nýjustu birtu tölur Hagstofu Íslands um áfengisneyslu ná til ársins 2024. Samkvæmt þeim minnkaði áætluð neysla á hvern íbúa fimmtán ára og eldri um 1,6 prósent það ár. Hún nam 7,6 lítrum af hreinum vínanda, samanborið við 7,7 lítra árið áður.

Samkvæmt skýringum Hagstofunnar við tölurnar byggist matið á áfengisgjaldi sem lagt er á innflutning og innlenda framleiðslu áfengis. Það nær einnig til áfengissölu í netverslunum og gefur því víðari mynd en sölutölur Vínbúðanna einar. Fríhafnarkaup og áfengi sem ferðamenn flytja með sér til landsins eru undanskilin. Þá er ekki leiðrétt fyrir áfengiskaupum erlendra gesta hér á landi.

Minni neysla samræmist hlutverki stofnunarinnar

Þorgerður bendir á að áfengisneysla hafi dregist saman í nágrannalöndunum. Sú þróun sé meðal hugsanlegra skýringa á minni sölu hér.

Nýjar tölur frá Svíþjóð styðja að neysla þar fari minnkandi. Samkvæmt rannsóknasamtökunum CAN dróst heildarneysla áfengis á hvern íbúa fimmtán ára og eldri saman um 2,7 prósent árið 2025. Matið nær bæði til skráðrar sölu og áætlaðrar óskráðrar neyslu, svo sem áfengis sem keypt er á ferðalögum.

Aðspurð hvort minni sala þýði ekki að ÁTVR sé að ná markmiðum sínum segir Þorgerður minni áfengisneyslu jákvæða þróun. Ríkiseinkasalan byggist á lýðheilsusjónarmiðum og meðal lykilhlutverka stofnunarinnar sé að takmarka aðgengi og stuðla að ábyrgri neyslu.

Ef neyslan sé að minnka samræmist það markmiðum ríkisins. Ekki liggi þó nákvæmlega fyrir að það skýri sölusamdráttinn.

Engin ákvörðun um lokun Vínbúða

Hagræðingaraðgerðirnar sem nú hafa verið kynntar snúa að skrifstofu og dreifingarmiðstöð. Ein framkvæmdastjórastaða verður lögð niður og stöðugildum þar að auki fækkað um tæplega sex.

Þorgerður segir einn framkvæmdastjóra þegar hafa látið af störfum. Frekari breytingar verði næsta vor þegar Sigrún Ósk Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri lætur af störfum vegna aldurs.

Hún telur ÁTVR áfram í stakk búið til að sinna lögbundnu hlutverki sínu.

Spurð hvort samdrátturinn geti leitt til lokunar Vínbúða eða styttri opnunartíma segir hún reksturinn stöðugt vera til skoðunar með tilliti til aðstæðna hverju sinni. Engar ákvarðanir um slíkt hafi verið teknar. Tíminn verði að leiða í ljós hvert framhaldið verður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×