Leitin að hamingjunni vesen í lífi okkar allra Sena kynnir 11. febrúar 2019 08:30 Björn Thors og Jóel Sæmundsson í hlutverkum bræðranna Óskars og Magga. Kvikmyndin Vesalings elskendur verður frumsýnd á fimmtudaginn.
Leit okkar að hamingjunni er gjarnan þyrnum stráð en getur einnig verið grátbrosleg. Kvikmyndin Vesalings elskendur, sem verður frumsýnd 14. febrúar, segir af vandræðagangi bræðranna Óskars og Magga og samferðafólks þeirra, sem öll reyna að fóta sig í hversdeginum með misjöfnum árangri. Bræðurnir eiga báðir í stökustu vandræðum með náin sambönd en nálgast það vandamál á ólíkan hátt."Annar vill vera með öllum konum en hinn ekki neinum." Bræðurninr eiga í stökustu vandræðum með náin sambönd.„Annar þeirra vill vera með öllum konum en hinn ekki neinum. Þetta er ofsalega skemmtileg mynd sem snertir mann, enda auðvelt að tengja við persónurnar sem allar eru í leit að hamingunni. Er ekki hamingjuleitin mesta vesenið í lífi okkar allra?“ segir Björn Thors, leikari en hann fer með hlutverk Óskars, bróðurins sem vill ekki vera með neinum og forðast tilfinningaleg tengsl. „Einhverra hluta vegna lendi ég oft í að leika slíka menn, karlmenn á miðjum aldri sem ná ekki að þroskast. Hlýtur að vera tilviljun,“ segir hann sposkur.Í myndinni segir einnig frá fjarlægum föður bræðranna sem á í svipuðum vandræðum, dýralækninum Önnu, sem sinnir hundi Óskars og stendur frammi fyrir mikilvægri ákvörðun. Listaspíran Ingibjörg reynir að fullorðnast eins hratt og hún getur og unglingarnir Danni T og Danni M hanga sífellt meira heima hjá Óskari.Grátbroslegur vandræðagangur í daglega lífinu er ekki óþekkt stef í íslenskum bíómyndum. Vesalings elskendur er þó ekki dæmigerð íslensk kvikmynd, enda er handritshöfundur og leikstjóri myndarinnar sænskur. „Maximilian Hult leggur dálítið aðrar áherslur en gjarnan má sjá í íslenskum kvikmyndum. Hann vinnur með fínlegri húmor en okkar íslenska, sem er oft groddalegur. Kómidían í hversdagsleikanum er allt í kringum okkur og Maximilian er sérstaklega flinkur að draga litlu hlutina í umhverfi okkar fram, öll þessi kómísku vandræði okkar við að lifa. Myndin verður þess vegna hlý og skemmtileg en vandræðaleg á saman tíma,“ segir Björn.Leitin að hamingjunni er tómt vesen.„Það er reyndar skemmtilegt að hann skuli gera myndina hér en sögusviðið var Stokkhólmur þegar hann skrifaði handritið og þar ætlaði hann að taka myndina upp. Röð tilviljana, meðal annars ákvæðið um 20% endurgreiðslu í íslenska kvikmyndaumhverfinu, varð til þess að verkefnið kom til Íslands og í það eru ráðnir íslenskir leikarar og íslenskt starfsfólk, sem er frábært.Önnur aðalhlutverk eru í höndum Jóels Sæmundssonar, Eddu Björgvins og Söru Daggar Ásgeirsdóttur. Vesalings elskendur verður frumsýnd 14. febrúar
Bíó og sjónvarp Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Fleiri fréttir Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira