Menning

Segja RÚV upphefja eigin verk á kostnað fagmanna í kvikmyndagerð

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Halldóra Geirharðsdóttir, Logi Bergmann og Benedikt Erlingsson voru áberandi í útsendingunni í gærkvöldi.
Halldóra Geirharðsdóttir, Logi Bergmann og Benedikt Erlingsson voru áberandi í útsendingunni í gærkvöldi. RÚV/Samsett
Félag íslenskra kvikmyndatökustjóra hefur sent frá sér ályktun þar sem útsending Ríkisútvarpsins frá Edduverðlaunahátíðinni er gagnrýnd.

Í ályktuninni er RÚV gagnrýnt fyrir að „snýta af afhendingum fagverðlauna Eddunnar, fyrir útsendingu og sýna þau síðan í klipptum stubbum án þakkarræðna,“ og er því bætt við að slíkt sýni vanvirðingu fyrir störfum þeirra fagaðila sem standi að baki íslenskrar kvikmyndagerðar.

RÚV er þá sakað um að hafa eytt meirihluta útsendingarinnar í gærkvöldi í að upphefja eigin verk á kostnað fagfólks í kvikmyndagerð og bent á að hátíðin eigi að vera uppskeruhátíð kvikmyndagerðar frekar en „árshátíð sjónvarpsstöðva.“

Að lokum krefst ÍKS þess að stjórnendur Ríkisútvarpsins og Eddunnar taki á málinu og „komi í veg fyrir að slíkt verði framtíðarformið á þessari faghátíð.“

Bergsteinn Björgúlfsson, forseti ÍKS.Vísir/Aðsend
Undir ályktunina skrifar Bergsteinn Björgúlfsson, forseti ÍKS.

Ályktun ÍKS í heild sinni má lesa hér að neðan.

Sú ákvörðun RÚV, að snýta af afhendingum fagverðlauna Eddunnar, fyrir útsendingu og sýna þau síðan í klipptum stubbum án þakkarræðna, lýsir vanvirðingu við störf þeirra fjölmörgu fagaðila sem standa að baki íslenskrar kvikmyndagerðar. Stjórnendur RÚV detta í þá gryfju að eyða bróðurparti útsendingartíma í að upphefja eigin verk á kostnað fagmanna í geiranum. Eddan er uppskeruhátíð kvikmyndagerðar á Íslandi, ekki árshátíð sjónvarpsstöðva. ÍKS krefst þess að stjórnendur RÚV og stjórn Eddunnar taki á þessu og komi í veg fyrir að slíkt verði framtíðarformið á þessari faghátíð okkar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.