Stjórnendur Lyft, sem stefnir á hlutabréfamarkað á árinu, upplýstu fyrir helgi að bandarísku leigubílaþjónustunni hefði enn ekki tekist að skila hagnaði. Í lýsingu sem birt var á vef verðbréfaeftirlitsins þar í landi á föstudag, í tilefni af fyrirhuguðu hlutafjárútboði Lyft, birtust í fyrsta sinn opinberlega nákvæmar fjárhagsupplýsingar um félagið.
Talið er að leigubílaþjónustan, sem er einn helsti keppinautur Uber, geti verið metin á bilinu 20 til 25 milljarða dala í útboðinu en stefnt er að skráningu félagsins á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinn í New York í vor.
Í lýsingunni kemur fram að tekjur Lyft hafi numið 2,2 milljörðum dala, sem jafngildir 263 milljörðum króna, á síðasta ári en tap félagsins var ríflega 911 milljónir dala, jafnvirði 109 milljarða króna.
Til samanburðar námu tekjur Lyft 343 milljónum dala árið 2016 og 1,1 milljarði dala árið 2017.
Tap leigubílaþjónustunnar var 683 milljónir dala árið 2016 og 688 milljónir dala ári síðar, eftir því sem tekið er fram í lýsingunni.
Fram kemur í frétt Reuters að stjórnendur og ráðgjafar Lyft muni hefja fundaröð með fjárfestum 18. mars næstkomandi. Félagið, sem var stofnað af þeim John Zimmer og Logan Green fyrir sjö árum, er um þessar mundir metið á um 15 milljarða dala.
Lyft hefur ekki enn skilað hagnaði
Kristinn Ingi Jónsson skrifar

Mest lesið

Stjórnarandstaðan í vasa hagsmunaaðila
Viðskipti innlent

Jakob Valgeir lét Guðbjart bróður sinn fara
Viðskipti innlent

„Ég held að þú þurfir ný gleraugu“
Viðskipti innlent

Ráðinn markaðsstjóri Bónuss
Viðskipti innlent

Af og frá að slakað sé á aðhaldi
Viðskipti innlent

Aka um Ísland í allt sumar og mynda vegakerfið í þrívídd
Viðskipti innlent

Ráðuneytið ógilti lóðaúthlutun fyrir milljarða
Viðskipti innlent

Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun sína um lækkun vaxta
Viðskipti innlent

Gefast upp á miðbænum: „Það er hringur eftir hring, engin bílastæði“
Viðskipti innlent

Of snemmt að segja til um hvort vaxtalækkunarferlinu sé lokið í bili
Viðskipti innlent