Icelandair segir nýjar vélar sínar öruggar þrátt fyrir tvö mannskæð flugslys véla af sömu gerð Jóhann K. Jóhannsson, Telma Tómasson og Vésteinn Örn Pétursson skrifa 11. mars 2019 21:10
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort Boeing 737-MAX 8 flugvélar Icelandair verði kyrrsettar eftir hörmulegt flugslys flugvélar sömu gerðar í Eþíópíu í gær. Flugritar vélarinnar eru fundnir og vonast er til þess að þeir varpi ljósi á orsakir slyssins. Samgönguyfirvöld hér á landi fylgjast náið með gangi mála. Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair segir vélarnar fullkomlega öruggar og að íslenskir flugfarþegar hafi ekkert að óttast. Tæplega 350 manns hafa farist í tveimur flugslysum á tæpu hálfu ári þar sem Boeing 737-MAX 8 vélar koma við sögu. Í lok október á síðasta ári fórst flugvél frá flugfélaginu Lion Air með 189 manns um borð á leið sinni frá Indónesíu og í gær fórst flugvél Ethiopian Airlines með 157 um borð, á leið sinni frá Addis Ababa. Samband við flugvélina í gær rofnaði eftir einungis sex mínútur eftir að hún tók á loft en líkindi eru talin með flugslysi Lion Air, í október í fyrra, þar sem sú flugvél var einnig var í flugtaki þegar slysið varð. Margir þeirra sem voru um borð í eþíópísku flugvélinni í gær voru á leiðinni á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kenya. Flugritar flugvélarinnar fundust í morgun og er vonast til að gögn úr þeim muni varpa ljósi á hvers vegna flugvélin hrapaði. Fréttastofan fjallaði ítarlega um flugslys Lion Air á síðasta ári og ræddi meðal annars við þjálfunarstjóra vélanna hjá Icelandair, sem er með þrjár slíkar Boeing 737-MAX 8 í flota sínum. Fjórða vélin, 737-MAX 9, er í standsetningu hjá flugfélaginu í Keflavík.Vél af gerðinni Boein 737-MAX. Myndin tengist fréttinni ekki beint.Drew Angerer/GettyEftir slysið í Indónesíu í október var talið að flugvél Lion Air hafi ofrisið vegna mistaka flugmanna og áréttaði framleiðandi vélanna að fylgja eftir öllum verklagsreglum í handbókum og leiðbeiningum. Kínversk og Indversks flugmálayfirvöld, auk flugfélaganna Ethiopian Airlines og Cayman Airways kyrrsett allar flugvélar þessarar tegundar. Kyrrsetningarnar ná til um 100 flugvéla sem er um þriðjungur þeirra sem eru í notkun af þessari nýjustu tegund Boeing flugvélaframleiðandans. Engin ákvörðun hefur verið tekin um kyrrsetningu í Bandaríkjunum og Evrópu en samgönguyfirvöld, meðal annars hér á landi, fylgjast náið með rannsókn málsins.Icelandair ekki ákveðið að kyrrsetja sínar vélar Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair, segist skilja vel hvers vegna fólk hafi kunni að hafa áhyggjur þegar tvö keimlík flugslys eigi sér stað með stuttu millibili, þar sem glænýjar flugvélar af sömu tegund eigi í hlut. Icelandair heldur úti þremur Boeing 737-MAX vélum í flota sínum. „Það er ekkert annað hægt að segja heldur en það að við reynum að útskýra fyrir fólki hvernig ástatt er. Hverjar okkar öryggiskröfur eru, hvernig við erum að fara eftir okkar ítrustu öryggiskröfum og hvernig við setjum öryggið alltaf í fyrirrúm. Við reynum að skýra aðstæður fyrir fólki sem hringir inn. Það hefur töluvert verið haft samband, bæði í síma sem og á samfélagsmiðlum. Sem eðlilegt er. Við náum yfirleitt að koma sem betur fer til skila hvernig í pottinn er búið,“ sagði Jens í kvöldfréttatíma Stöðvar 2 í dag.Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair.Stöð2Hann segir jafnframt að vel gæti komið til þess að flugfélagið muni sjálft hafa frumkvæði að kyrrsetningu véla sinna. Það yrði þó aðeins gert í samráði við flugmálayfirvöld í Evrópu og Ameríku, auk annarra flugfélaga sem haldi úti sömu vélum. Það eru félög á borð við American Airlines, Southwest og Norwegian. „Við myndum í raun og veru yfirleitt taka svoleiðis ákvörðun í samráði við slíka aðila og á sömu forsendum. En það þyrftu þá að liggja fyrir einhverskonar upplýsingar sem myndu knýja okkur til þess.“ Jens segir þá að miðað við upplýsingar sem liggi fyrir um fyrra flugslysið, þar sem vél Lion Air hrapaði og 189 manns fórust, bendi margt til þess að þeir verkferlar og viðhaldsstaðlar sem Icelandair vinnur eftir hefðu komið í veg fyrir það slys. „Þar af leiðandi hafi ekki verið ástæða til þess að kyrrsetja vélarnar strax eftir það. Síðan bendir ýmislegt til þess að þrátt fyrir að þau [slysin] séu keimlík þá eigi þau ekki allt sameiginlegt og það getur vel verið að það séu allt aðrar orsakir fyrir þessu.“Segir vélarnar öruggar Jens segir jafnframt að enginn ætti að þurfa að hafa áhyggjur af því að fljúga með hinum nýju vélum Icelandair. „Við erum búin að vera í flugrekstri í 80 ár og höfum alltaf sett öryggið á oddinn og við myndum aldrei tefla því orðspori okkar í tvísýnu og við getum sagt með fullri vissu að það eiga allir að geta flogið með þessum vélum.“
Boeing Fréttir af flugi Icelandair Samgöngur Samgönguslys Tengdar fréttir Kínverjar kyrrsetja Boeing 737 Max 8 Kínversk flugmálayfirvöld hafa ákveðið kyrrsetja Boeing 737 Max 8 þotur kínverskra flugfélaga, eftir hið mannskæða flugslys sem varð í Eþíópíu um helgina. 11. mars 2019 06:41 Farþegaflugvél Ethiopian Airlines hrapaði á leið til Naíróbí Forsætisráðherra Eþíópíu hefur staðfest að vél af gerðinni Boeing 737 hafi hrapað. 10. mars 2019 08:38 Hrun hjá Icelandair í Kauphöllinni í morgunsárið Gengi bréfa Icelandair í Kauphöllinni hefur lækkað um tíu prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. 11. mars 2019 10:27 Boeing 737 MAX 8: Samgöngustofa fylgist grannt með gangi mála Íslensk flugumferðaryfirvöld fylgist grannt með umræðunni innan og ákvörðunum Flugöryggisstofnunar Evrópu um Boeing-vélar af gerðinni 737 MAX 8. 11. mars 2019 11:05 Farþegar Icelandair hringja inn vegna slyssins Þrjár slíkar þotur eru í íslenska flugflotanum og segir framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair ekkert benda til þess að Icelandair muni kyrrsetja sínar vélar. 11. mars 2019 14:51 Mest lesið Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Innlent Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Erlent Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Innlent Vara við eldislax í Haukadalsá Fréttir „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Innlent Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Innlent „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Líkamsræktarstöð World Class í Laugum rýmd vegna vatnsleka Skuggahliðar þyngdarstjórnunarlyfja og útskúfun vegna BDSM Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Slasaður eftir að tveir bílar skullu saman á hættulegum gatnamótum við Skógafoss Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Guðbjörg ráðin skólastjóri í tólfta grunnskóla Hafnarfjarðar Skyldleiki við lögregluþjón þvældist fyrir Stærðar borgarísjaki sást vestur af Látrabjargi „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Bjóða þeim sem skera niður regnbogafána í heimsókn Valdar strætóleiðir ganga oftar og lengur Hafi ekki forsendur til að efast um ákvörðun Sjúkratrygginga Rannsókn á „bíræfnum“ þjófnaði á viðkvæmu stigi Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu verði tryggð Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Ástandið á Gasa: 42 prósent telja að Íslendingar ættu að beita sér meira „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Sjá meira
Kínverjar kyrrsetja Boeing 737 Max 8 Kínversk flugmálayfirvöld hafa ákveðið kyrrsetja Boeing 737 Max 8 þotur kínverskra flugfélaga, eftir hið mannskæða flugslys sem varð í Eþíópíu um helgina. 11. mars 2019 06:41
Farþegaflugvél Ethiopian Airlines hrapaði á leið til Naíróbí Forsætisráðherra Eþíópíu hefur staðfest að vél af gerðinni Boeing 737 hafi hrapað. 10. mars 2019 08:38
Hrun hjá Icelandair í Kauphöllinni í morgunsárið Gengi bréfa Icelandair í Kauphöllinni hefur lækkað um tíu prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. 11. mars 2019 10:27
Boeing 737 MAX 8: Samgöngustofa fylgist grannt með gangi mála Íslensk flugumferðaryfirvöld fylgist grannt með umræðunni innan og ákvörðunum Flugöryggisstofnunar Evrópu um Boeing-vélar af gerðinni 737 MAX 8. 11. mars 2019 11:05
Farþegar Icelandair hringja inn vegna slyssins Þrjár slíkar þotur eru í íslenska flugflotanum og segir framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair ekkert benda til þess að Icelandair muni kyrrsetja sínar vélar. 11. mars 2019 14:51
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Innlent
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Innlent