Valskonur geta orðið deildarmeistarar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. mars 2019 11:30 Valur hefur aðeins tapað einum leik síðan Helena Sverrisdóttir gekk í raðir liðsins. vísir/vilhelm
Valur getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn í körfubolta kvenna með sigri á Stjörnunni í leik sem hefst klukkan 16:30 í dag. Þrír aðrir leikir leikir fara fram í 27. og næstsíðustu umferð Domino's deildar kvenna á sama tíma. Valskonur hafa unnið 16 deildarleiki í röð og með sigri í Garðabænum er titilinn þeirra. Valur er með tveggja stiga forystu á Keflavík á toppi deildarinnar og auk þess með betri árangur í innbyrðis viðureignum liðanna. Stjarnan er næstheitasta lið deildarinnar en Garðbæingar eru búnir að koma sér fyrir í 3. sætinu með sex sigrum í röð. Valur og Stjarnan mættust í úrslitaleik Geysisbikarsins í síðasta mánuði þar sem Valskonur höfðu betur. Eftir gott gengi í síðustu umferðunum á Breiðablik enn möguleika á að bjarga sér frá falli. Blikar sækja Keflvíkinga heim í dag og verða að vinna til að forðast fall. Breiðablik hefur unnið tvo útileiki í röð. Skallagrímur, sem er í sjöunda og næstneðsta sæti deildarinnar, getur tryggt sæti sitt með sigri á KR í Borgarnesi. Breytir þá engu hvernig leikur Keflavíkur og Breiðabliks fer. KR-ingar hafa farið út af sporinu á síðustu vikum og tapað sex leikjum í röð. KR er í 4. sæti deildarinnar með 30 stig, jafn mörg og Snæfell sem er í 5. sæti. Snæfell tekur á móti Haukum í dag. Hafnfirðingar hafa tapað fjórum leikjum í röð.Leikir dagsins (hefjast allir klukkan 16:30): Stjarnan - Valur Keflavík - Breiðablik Skallagrímur - KR Snæfell - Haukar Leikur Stjörnunnar og Vals verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Fleiri fréttir Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Sjá meira