Segir Víking skulda sér laun: „Þeir hunsa mig bara“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 7. apríl 2019 10:00 Castillion í leik með Víking vísir/Anton
Sóknarmaðurinn Geoffrey Castillion er að leita sér að nýju félagi og vill rifta samningi sínum við FH. Þá segir hann Víking R. skulda sér pening. Þetta sagði hann í viðtali við Fótbolta.net. Castillion kom til Víkings sumarið 2017 og setti 11 mörk í 16 leikjum í Pepsideildinni. Hann fór svo til FH fyrir síðasta tímabil en náði sér ekki á strik í Hafnarfirði svo hann var lánaður aftur til Víkings síðari hluta síðasta sumars. Framherjinn er enn samningsbundinn FH en hefur ekki æft með liðinu síðustu misseri. Á dögunum sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, að óljóst væri hvort hann verði með liðinu í sumar. Castillion er heima í Hollandi og er í viðræðum við FH um að rifta samningnum. „Ég fór frá FH í nokkra daga í janúar. Svo sagði þjálfarinn við mig að ég gæti farið því að ég væri ekki í plönum hans fyrir tímabilið. Það væri betra fyrir mig að leita að öðru félagi,“ sagði Hollendingurinn við Fótbolta.net. Hann vill samt ekki snúa aftur í Fossvoginn, þar sem hann hefur gert það gott, því Víkingur skuldi honum pening. „Þeir skulda mér pening, þeir eiga eftir að greiða mér laun fyrir tvo mánuði. Ég hef reynt að ræða við þá, en þeir hunsa mig bara.“ „Mér ekki sýnd virðing hjá Víkingi og þess vegna vil ég ekki lengur spila fyrir þá.“ Castillion spilaði alls 37 meistaraflokksleiki á Íslandi og skoraði í þeim 18 mörk. Það er ólíklegt að það bætist við þær tölur úr þessu þar sem framherjinn virðist ætla að leita til annara landa. Pepsi Max deildin hefst í lok þessa mánaðar á leik Vals og Víkings á Hlíðarenda föstudagskvöldið 26. apríl.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira