Aprílspá Siggu Kling – Ljónið: Þú býrð yfir svo miklu meira flæði og afli Sigga Kling skrifar 5. apríl 2019 09:00
Elsku Ljónið mitt, það er alltaf svo mikið að frétta, það væri allt svo ofboðslega leiðigjarnt ef þú ættir ekki sess og sæti alls staðar í kringum mann. Þér er mikið annt um útlit þitt og líkami þinn endurspeglar þitt andlega ástand, svo elskaðu hann af öllu hjarta. Þú hefur SVO mikla hæfileika til að elska og gefur þig í ástina eins og enginn sé morgundagurinn, en missir svo allan mátt ef þú færð hana ekki endurgoldna, og alls ekki vera heltekinn af einum né neinum. Þú þarft að skilja að í öllu ertu mátturinn og dýrðin og enginn getur fullkomnað þig nema þú sjálfur, notaðu þann eldmóð og ólgandi kraft til að skapa það sem þú átt skilið og þarft. Gefðu sjálfum þér áskoranir og gefstu aldrei upp, þú býrð yfir svo miklu meira flæði og afli en þú getur ímyndað þér, þú ert eins og virkjun sem hefur enn ekki verið nýtt til fulls. Þú skalt elska þær breytingar sem koma til þín og tengjast starfsframa og þú skalt í því upphafi vera með skýr mörk á því hvað þú vilt og hvað ekki og hversu miklum tíma þú vilt eyða í þetta eða hitt. Þú þarft að hafa tíma til að leika þér, slappa af, tengjast náttúrunni því þú þrífst ekki í neinskonar búri eða takmörkunum því þú þarft alveg eins og konungur Ljónanna þitt pláss. Þú ert líka með eðli kettlingsins sem allir vilja eiga og nostra við svo nýttu þér kæti hans og taktu lífinu ekki of alvarlega því það gerir það svo hundleiðinlegt. Svaraðu illu með góðu og semdu við annað fólk með frið í hjarta því þá mun sjálfstraust þitt eflast. Það er líka svo sannarlega betra að gefa en þiggja og það er þín stærsta lexía í lífinu, peningar koma og fara, en andartak bara einu sinni.Knús og kossar, þín Sigga KlingFræg Ljón: Cara Delevingne fyrirsæta, Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og söngkona, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Birgitta Haukdal söngkona, Barack Obama Bandaríkjaforseti, Ásdís Rán fyrirsæta, Gísli Gíslason geimfari, Geir Ólafsson söngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Albert Eiríks, matgæðingur af bestu sort, Jón Óttar Ragnarsson, athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Diddú, Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, Arnór Dan, söngvari, Agent Fresco, Ana Mafalda, besta húshjálp í heimi, Sema Erla Serdar, baráttukona, Rósa Ingólfsdóttir, sjónvarpskona, Anton Máni Svansson, kvikmyndaframleiðandi, Hulk.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Fleiri fréttir „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Sjá meira