Grindavík ekki í vandræðum með Aftureldingu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 30. apríl 2019 20:00 Grindvíkingar fagna marki Vísir/Hanna
Pepsi Max deildar lið Grindavíkur sló Aftureldingu örugglega úr Mjólkurbikarnum í 32-liða úrslitunum kvöld. Fjölnir vann ÍR og Keflavík hafði betur gegn Kórdrengjum. Aron Jóhannsson kom heimamönnum í Grindavík á bragðið á 17. mínútu en gestirnir úr Mosfellsbæ jöfnuðu metin á 33. mínútu með marki frá Alexander Aroni Davorssyni. Josip Zeba kom Grindavík aftur yfir með glæsilegu skoti upp úr hornspyrnu á 66. mínútu. Grindvíkingar settu svo tvö mörk á tveimur mínútum undir lokin og kláruðu leikinn. Í Breiðholti tók ÍR á móti Fjölni. Gestirnir komust yfir eftir um korters leik þegar Guðmundur Karl Guðmundsson skoraði eftir stoðsendingu Alberts Brynjars Ingasonar. Bæði lið fengu góð færi til þess að skora í upphafi seinni hálfleiks en markið kom ekki fyrr en á 63. mínútu þegar Jóhann Árni Gunnarsson kom Fjölni í 2-0. Heimamenn náðu að jafna tveimur mínútum seinna, varamaðurinn Ágúst Freyr Hallsson gerði það eftir sendingu Helga Freys Sigurgeirssonar. Undir lokin tryggði Guðmundur Karl Fjölni svo sigurinn, lokatölur í Breiðholtinu 3-1. Suður með sjó sótti þriðju deildar lið Kórdrengja Keflavík heim. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum, það gerði Tómas Óskarsson á 18. mínútu. Grindavík, Fjölnir og Keflavík verða því í pottinum þegar dregið verður til 16-liða úrslita en Afturelding, ÍR og Kórdrengir eru úr leik. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Mjólkurbikarinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira