Samkvæmt heimildum AP fréttaveitunnar snýr málið sérstaklega að ummælum Trump yngri um viðleitni þeirra feðga til að byggja Trump-turn í Moskvu. Trump yngri hafði sagt þingmönnum í dómsmálanefnd öldungadeildarinnar að hann hefði lítið vitað af þeim áætlunum.
Michael Cohen, fyrrverandi lögmaður forsetans, sagði hins vegar í febrúar að hann hefði sagt Trump yngri um það bil tíu sinnum frá verkefninu.
Washington Post bendir þá á að þingmenn hafi einnig ýjað að því að Trump yngri hafi logið að þingmönnum varðandi hvað faðir hans vissi um umdeildan fund í Trump-turni í New York árið 2016.
Þá funduðu þeir Trump yngri; Jared Kushner, tengdasonar forsetans, og Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóra Trump, með rússneskum aðilum. Boðað var til fundarins með tölvupóstum þar sem fram kom að rússneskur lögfræðingur væri þarna vegna ætlunar yfirvalda Rússlands að hjálpa Trump eldri að ná kjöri.
Lögfræðingurinn, sem heitir Natalia Veselnitskaya, átti samkvæmt fundarboðinu að afhenda framboði Trump gögn sem kæmu Hillary Clinton, mótframbjóðanda Trump, illa.
Trump yngri tók fundarboðinu fagnandi.
„Ef þetta er eins og þú segir, þá elska ég það,“ skrifaði Trump í svari sínu.
Mueller íhugaði að ákæra Trump yngri
Í skýrslu Mueller kemur fram að engar sannanir hafi fundist um samráð framboðs Trump með Rússum varðandi afskipti þeirra af kosningunum. Rannsókn Mueller leiddi þó í ljós fjölda samskipta á milli kosningaráðgjafa Trump og Rússa fyrir og eftir kosningarnar 2016. Engar sannanir fundust fyrir því að um glæpsamlegt samsæri væri að ræða.Sjá einnig: Fjöldi samskipta við Rússa en ekki nægilegar sannanir fyrir glæpum
Skýrslan og fregnir af samskiptum Trump-liða og útsendara yfirvalda Rússlands, sýnir þó að Trump-liðar vissu af aðgerðum Rússa og tóku þeim fagnandi.
Í skýrslu Mueller kemur fram að hann íhugaði að ákæra þá Trump yngri, Jared Kushner og Paul manafort vegna umrædds fundar. Hann hafi þó ákveðið að gera það ekki vegna þess að hann hafi ekki fundið nægilegar sannanir fyrir því að þeir þrír hafi í raun vitað að þeir væru að brjóta lög.
Lugu um umfangsefni fundarins
Í fyrstu sögðu Trump yngri og starfsmenn föður hans að umræddur fundur hefði ferið um ættleiðingar og ekki kosningarnar. Hann þurfti svo ítrekað að breyta sögu sinni og kom í ljós að Trump eldri samdi yfirlýsinguna um ættleiðingarnar, sem reyndist ósönn.Við rannsókn Mueller sögðu sömu aðilar þó að þeim hefði verið lofað upplýsingum um Clinton en fundurinn hefði að mestu verið um viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna gagnvart rússneskum auðjöfrum og embættismönnum.
Trump yngri hefur einnig sagt að faðir hans hafi ekki vitað af þeim fundi fyrirfram og hann hafi aldrei sagt honum frá fundinum.
Í skýrslu Robert Mueller um niðurstöður Rússarannsóknarinnar svokölluðu kemur þó fram að Cohen sagði rannsakendum að hann myndi eftir því að hafa verið á skrifstofu Trump eldri þegar sonur hans sagði honum frá fundinum. Cohen sagði að miðað við samtalið hafi þeir rætt fundinn áður.