Lífið

Hatari negldi dómararennslið og trommugimpið er kominn með nýja kylfu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Klemens stóð sig vel í kvöld.
Klemens stóð sig vel í kvöld. mynd/ eurovision.tv/Thomas Hanses
Hatari flutti lagið Hatrið mun sigra á dómararennslinu í Expo-höllinni í Tel Aviv rétt í þessu og gekk það mjög vel.

Atriðið rann vel í gegn og var enn meiri kraftur í flutningum miðað við æfinguna fyrr í dag.

Viðbrögðin við atriðinu voru frábær inni í blaðamannahöllinni og var öskrað og klappað.

Athygli vakti að Einar trommugimp var kominn með nýja kylfu á sviðinu í kvöld og er atriðið greinilega fullmótað eftir dómararennslið.

Hatari fer 13. á svið annað kvöld á fyrri undanriðlinum í Eurovision árið 2019. Íslendingum er spáð áfram af helstu veðbönkum og það nokkuð sannfærandi.

 
 
 
View this post on Instagram
Trommugimpið okkar er kominn með nýja kylfu! Dómararennslið er að hefjast! #12stig #Eurovision

A post shared by RÚV (@ruvgram) on May 13, 2019 at 11:20am PDT

Fáses var í beinni útsendingu á Facebook og fóru þau yfir atriði Hatara. 





Rætt var við íslenska hópinn á appelsínugula dreglinum við Habima torgið í Tel Aviv í kvöldfréttum Stöðvar 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.