Fara með meirihluta í hótelinu við Hörpu 5. júní 2019 07:00 Stefnt er að opnun hótelsins næsta vor, tveimur árum síðar en upphaflega var áætlað. vísir/vilhelm
Íslenskir einkafjárfestar og lífeyrissjóðir fara nú með meirihluta hlutafjár í félagi sem stendur að byggingu fimm stjörnu Marriott Edition-hótels sem rís nú við hlið Hörpu í Austurhöfn. Hópurinn, sem er undir forystu framtakssjóðs í rekstri Stefnis, lagði félaginu til tæpa 1,3 milljarða króna í nýtt hlutafé í fyrra og eignaðist þá 66 prósenta hlut í verkefninu. Samkvæmt heimildum Markaðarins er áformað að endanlegur hlutur Íslendinganna í verkefninu – í gegnum félagið Mandólín – verði um 70 prósent á móti 30 prósenta hlut bandaríska fasteignaþróunarfélagsins Carpenter & Company. Íslensku fjárfestarnir lögðu fyrr á árinu Cambridge Plaza Venture Company, móðurfélagi hótelfélagsins, til um sex milljónir dala, jafnvirði um 740 milljóna króna, í nýtt hlutafé, eftir því sem heimildir Markaðarins herma, en þeir hafa skuldbundið sig til að setja 14 milljónir dala, ríflega 1,7 milljarða króna, til viðbótar í félagið. Skuldbinding Mandólíns gagnvart verkefninu var aukin um 11 milljónir dala í lok síðasta árs, að því er fram kemur í nýbirtum ársreikningi félagsins, og er heildarskuldbinding þess því nú allt að 42 milljónir dala eða sem jafngildir tæplega 5,2 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Carpenter & Company, sem íslenski fjárfestirinn Eggert Þór Dagbjartsson er hluthafi í, lagði stærstan hluta af eiginfjárframlagi sínu í hótelverkefnið á fyrstu stigum þess og fór sem dæmi með 61,5 prósenta hlut í framkvæmdinni í lok árs 2016. Í kjölfar síðustu hlutafjáraukningar í hótelinu hafa íslensku fjárfestarnir hins vegar eignast ríflegan meirihluta í verkefninu. Ef miðað er við að heildarfjárfesting Mandólíns fyrir 70 prósenta hlut í verkefninu verði 42 milljónir dala, eins og skuldbinding félagsins hljóðar upp á, munu eigendur hótelfélagsins leggja því til alls um 60 milljónir dala, jafnvirði 7,4 milljarða króna, en verkefnið er að öðru leyti fjármagnað með lánsfé. Arion banki er sem kunnugt er aðallánveitandi að verkefninu og var jafnframt meðal stærstu eigenda lóðarinnar sem lögð er undir hótelið. Stærsti hluthafi Mandólíns með helmingshlut er framtakssjóðurinn SÍA III, sem er í rekstri Stefnis, dótturfélags Arion banka, en í hluthafahópi sjóðsins eru einkum íslenskir lífeyrissjóðir og tryggingafélög. Næststærstu hluthafar Mandólíns, með 12,5 prósenta hlut hvor, eru félögin Snæból og Stormtré en fyrrnefnda félagið er í jafnri eigu hjónanna Finns Reyrs Stefánssonar og Steinunnar Jónsdóttur og það síðarnefnda í eigu Hreggviðs Jónssonar, aðaleiganda Veritas Capital. Þá fer Vitinn Reykjavík, sem er að stærstum hluta í eigu viðskiptafélaganna Jónasar Hagan Guðmundssonar og Gríms Garðarssonar, með 9,4 prósenta hlut, Almenni lífeyrissjóðurinn með 6,2 prósent, Festa lífeyrissjóður 5,4 prósent og loks heldur Feier, félag hjónanna Hjörleifs Jakobssonar og Hjördísar Ásberg, á 4,1 prósents hlut. Upphaflega stóð til að opna hótelið í fyrra en Richard L. Friedman, forstjóri og aðaleigandi Carpenter & Company, og Daniel Flannery, framkvæmdastjóri Edition-hótela Marriott, sögðu í samtali við Fréttablaðið um síðustu helgi að nú væri stefnt að opnun næsta vor. Samið hefur verið til 50 ára við Marriott Edition sem mun sjá um reksturinn. Spurður um kostnaðinn við framkvæmdirnar sagði Friedman að bygging fimm stjörnu hótela fæli í sér áskoranir og því hefðu erlendir sérfræðingar verið kallaðir til starfa með hinum íslensku. „Íslenskir verktakar hafa ekki byggt fimm stjörnu hótel áður. Það gefur augaleið. Það er allt öðruvísi en að byggja íbúðablokk eða skrifstofubyggingu. Þannig að það hefur verið áskorun,“ sagði hann. Þrátt fyrir tafir og kostnaðarauka sagðist Friedman hins vegar vera brattur. „Þegar allt kemur til alls hef ég ekki áhyggjur.“ hordur@frettabladid.is, kristinningi@frettabladid.is
Birtist í Fréttablaðinu Reykjavík Mest lesið Himinháar kröfur í galtóm bú veitingamanna á Akureyri Viðskipti innlent Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Rukkað því fólk hékk í rennunni Neytendur Fyrrverandi aðstoðarmaður skellir sér aftur í auglýsingarnar Viðskipti innlent Ekkert verður af frekari loðnuvertíð Viðskipti innlent Lemon stígur skrefið frá París til Akureyrar Viðskipti innlent Engin bráð hætta á „bíólausu Íslandi“ Viðskipti innlent Skype heyrir brátt sögunni til Viðskipti erlent Fyrsti kaffibollinn minnir hann á að þrjú börn eru á heimilinu Atvinnulíf Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Viðskipti innlent Fleiri fréttir Himinháar kröfur í galtóm bú veitingamanna á Akureyri Fyrrverandi aðstoðarmaður skellir sér aftur í auglýsingarnar Ekkert verður af frekari loðnuvertíð Engin bráð hætta á „bíólausu Íslandi“ Skattar á áfengi hæstir á Íslandi Stefna á Coda stöð við Húsavík Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Önnur Airbus-þotan væntanleg á morgun Kaupin á TM gengin í gegn fyrir ríflega þrjátíu milljarða króna Tveir af hverjum þremur andvígir sameiningu bankanna Skella sér í sósur og ís fyrir fjóra milljarða Virða niðurstöðu Íslandsbanka „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Íslandsbanki afþakkar boð Arion um samrunaviðræður Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman Misstu þrjá dróna í gosið við tökur á sýningunni Nýjar verðbólgutölur gefa von um hraðari lækkun vaxta Björn hvergi af baki dottinn í milljarðadeilu Verðbólga 4,2 prósent og ekki minni í fjögur ár Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri Sjá meira