Sánchez, sem hefur átt afar erfitt uppdráttar síðan hann gekk í raðir Manchester United í ársbyrjun 2018, skoraði einnig í 4-0 sigri Síle á Japan í fyrsta leik liðsins í Suður-Ameríkukeppninni.
Síle, sem vann Suður-Ameríkukeppnina 2015 og 2016, komst yfir á 8. mínútu með marki Jose Fuenzalida.
Á 26. mínútu fékk Ekvador vítaspyrnu. Enner Valencia fór á punktinn og skoraði. Staðan var jöfn, 1-1, í hálfleik.
Sánchez kom Síle aftur yfir á 51. mínútu. Þetta var 43. landsliðsmark hans.
Ekvador var ekki líklegt til að jafna eftir mark Sánchez og ekki bætti úr skák að Gabriel Achilier fékk rautt spjald á 89. mínútu fyrir brot á Arturo Vidal.
Síle mætir Úrúgvæ í lokaumferð riðlakeppninnar. Ekvador mætir Japan og verður að vinna og treysta á að önnur úrslit verði hagstæð til að komast í 8-liða úrslit.
Mörkin úr leik Ekvadors og Síle má sjá hér fyrir neðan.