Bandaríkin heimsmeistarar í fjórða sinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. júlí 2019 16:45 Megan Rapinoe fagnar marki sínu. vísir/getty Bandaríkin eru heimsmeistarar í annað sinn í röð og í fjórða sinn alls eftir 2-0 sigur á Evrópumeisturum Hollands í úrslitaleik í Lyon í dag. Uppselt var á leikinn en 57.900 manns sáu Bandaríkin vinna sanngjarnan sigur. Bandaríska liðið vann alla sjö leiki sína á HM í Frakklandi með markatölunni 26-3. Aldrei hefur lið skorað jafn mikið á einu heimsmeistaramóti og Bandaríkin í ár.- Most goals scored at a specific FIFA Women's World Cup 26 - USA (2019 +2) 25 - USA (1991) 25 - Germany (2003)#FIFAWWC#USA — Gracenote Live (@GracenoteLive) July 7, 2019 Staðan í hálfleik var markalaus en Hollendingar gátu þakkað markverði sínum og fyrirliða, Sari van Veenendaal, fyrir þá stöðu. Hún varði þrisvar sinnum frá Alex Morgan og einu sinni frá Julie Ertz. Á 60. mínútu dæmdi Stephanie Frappart vítaspyrnu á Stefanie van der Gragt fyrir brot á Morgan. Frappart studdist við myndband þegar hún kvað upp dóminn. Hann virtist vafasamur í fyrstu en í endursýningu sást að Van Der Fragt sparkaði í síðuna á Morgan. Megan Rapinoe fór á punktinn og skoraði af öryggi, sitt sjötta mark á HM og það fimmtugasta fyrir bandaríska landsliðið. Rapinoe er fyrsti leikmaðurinn sem skorar úr víti í úrslitaleik á HM kvenna og er auk þess elsti leikmaðurinn til að skora í úrslitaleik, 34 ára og tveggja daga.1 - USA's Megan Rapinoe is the first player to score a penalty in a Women's World Cup final, as well as becoming the oldest scorer in a final (34 years 2 days). Composed. #FIFAWWC#USANEDpic.twitter.com/hKGkZIMS6d — OptaJoe (@OptaJoe) July 7, 2019 Á 69. mínútu kom Rose Lavalle Bandaríkjunum í 2-0 með góðu vinstri fótar skoti. Þetta var þriðja mark hennar á HM í Frakklandi. Eftir þetta var allur vindur úr Hollandi og Bandaríkjamenn voru líklegri til að bæta við mörkum en Hollendingar að minnka muninn. Bandaríkin fengu færi til að auka muninn en fleiri urðu mörkin ekki. Lokatölur 2-0, bandaríska liðinu í vil. Bandaríkin urðu einnig heimsmeistarar 1991, 1999 og 2015, og eru langsigursælasta lið í sögu HM kvenna.#USA are the 2019 Women's World Cup winners. 1991 1999 2015 2019 An incredible Women's World Cup record from the USA. @USWNT#USAvNED#WWC19#WWCFINAL#FIFAWWC2019pic.twitter.com/WxV2ojIp9K — Match of the Day (@BBCMOTD) July 7, 2019 Bandaríkin HM 2019 í Frakklandi
Leik lokið: Ísland - Ítalía 71-95 | Ítalir ekki í vandræðum þrátt fyrir fjarveru lykilmanna Körfubolti
Leik lokið: Ísland - Ítalía 71-95 | Ítalir ekki í vandræðum þrátt fyrir fjarveru lykilmanna Körfubolti