Bíó og sjónvarp

Benedikt segir kvikmyndaiðnaðinn vera með kolefnisvindgang

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Benedikt Erlingsson á Eddu verðlaunahátíðinni, þar sem Kona fer í stríð hlaut tíu verðlaun.
Benedikt Erlingsson á Eddu verðlaunahátíðinni, þar sem Kona fer í stríð hlaut tíu verðlaun. fbl/ernir
Leikstjórinn og leikarinn þjóðkunni Benedikt Erlingsson er staddur á Karlovy Vary kvikmyndahátíðinni í Tékklandi. Kvikmynd hans Kona fer í stríð vann svokölluð LUX-verðlaun á hátíðinni í fyrra.

Benedikt var óvæginn í garð kvikmyndahátíða og kvikmyndaiðnaðarins í ástríðufullri ræðu sem hann flutti á hátíðinni í gær þar sem hann sagði m.a. að kvikmyndahátíðir væru með kolefnisvindgang. Þetta kemur fram í umfjöllun kvikmyndamiðilsins Screen Daily.

„[Kvikmyndahátíðir] senda útsendara víðs vegar um heim, þar sem þeir prumpa kolefni. Þær bjóða erlendum gestum, sem prumpa kolefni. Þeir borða kjöt, ferðast með leigubílum, hækka í loftkælingunni. Eru kvikmyndahátíðir hluti af vandamálinu? Já. Geta þær haldið áfram eins og látið sem ekkert sé? Nei. Þær munu þurfa að breytast ef þær eiga að vera sjálfbærar,“ sagði Benedikt m.a. í ræðu sinni.

Hann beinti jafnframt á að kvikmyndaframleiðsla sé hluti af vandamálinu og nefndi það sem dæmi að 1600 kvikmyndir væru gerðar á ári í Evrópu. Aðeins 600 næðu að fá dreifingu utan heimalands síns.

Það segir Benedikt ósjálfbært og bendlar það við afþreyingarþráhyggju nútímans. Hann taldi einnig að tímabilið í mannkynssögunni frá seinni heimstyrjöld til yfirvofandi loftslagshamfara verði í framtíðinni kallað öld afþreyingarinnar vegna þessarar þráhyggju.

„[Tímabilið] þegar homo sapien stakk höfði sínu í sand afþreyingar og var ófær um að aðhafast nokkuð í yfirvofandi hættu.“

Benedikt nefndi þó til sögunnar nokkrar lausnir á vandanum. Iðnaðurinn ætti að fækka flugferðum, framleiða myndir með minna kolefnisfótspor, það ætti að fækka kvikmyndahátíðum, erindi erlendra gesta gætu verið flutt gegnum myndsímtal frekar en með flugferð fram og til baka, og þar fram eftir götunum.

Einnig nefndi hann lausnina að planta trjám. Það væri hægt að hafa athöfn í kringum það að planta trjám á kvikmyndahátíðum.

„Við gætum tjúttað alla nóttina í nýja hátíðarskóginum okkar, komið seint heim og sofið allan daginn. Þetta er mín lausn – vinna minna, sofa meira og planta trjám.“

Kvikmyndin Kona fer í stríð snýst að miklu leyti um loftslagsbreytingar, og hefur Benedikt áður sagt að það hafi verið ætlun sín að gera „feel-good“ mynd um loftslagsbreytingar. Hún hefur hlotið nánast einróma lof gagnrýnenda síðan hún kom út, og unnið til þó nokkurra verðlauna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.