Logi: Langar ekki öllum að skora á móti Val? Víkingur Goði Sigurðarson skrifar 21. júlí 2019 21:47 Víkingar fagna marki Loga í kvöld. vísir/daníel
Logi Tómasson skoraði í kvöld jöfnunarmark fyrir Víking 2-2 jafntefli á heimavelli gegn Val. Valsmenn komust yfir 2-0 en Víkingar gerðu mjög vel í að koma tilbaka og markið frá Loga fullkomnaði endurkomuna. Logi skoraði líka á móti Val í opnunarleik Pepsi Max deildarinnar í apríl. Hann lagði líka upp mark í þeim leik og var maður leiksins. Þetta eru einu mörk Loga í meistaraflokki og því voru eflaust margir að spá hvað málið er með Loga og Val. „Mér finnst gaman að skora á móti Íslandsmeisturum þeir eru góðir. Langar ekki öllum að skora mörk á móti Val?“ Valsmenn komust snemma yfir en gerðu síðan lítið fram á við í seinni hálfleik. Víkingarnir voru hinsvegar ekki að skapa sér mikið af dauðafærum en voru mikið meira með boltann. „Mér fannst við vera betri aðilinn í seinni hálfleik og hefðum alveg átt skilið meira en stig mögulega.“ „Það vantaði aðallega uppá á síðasta þriðjungnum. Við vorum að koma okkur í góðar stöður á vellinum en það vantaði bara að klára þær aðeins betur. “ Eftir leikinn eru Víkingar í 10. sæti jafnir á stigum með Grindavík og KA. Þeir eru þó ekkert hræddir við að falla úr deild þeirra bestu. „Mér finnst við vera með mjög gott lið og vera að spila vel. Þetta er bara sama og venjulega að við náum ekki að klára þrjú stig. Við erum að gera alltof mörg jafntefli ég vona bara að þetta fari að koma bráðlega. “ Fjórir af næstum fimm leikjum Víkinga eru á móti Stjörnunni, Breiðablik og KR sem eru þrjú af fjórum efstu liðum deildarinnar. Víkingar eiga Blika bæði í deildinni og í undanúrslitaleik bikarsins. „Skemmtilegustu leikirnir eru á bestu liðunum. Þetta eru leikirnir til að sýna hvað maður getur í fótbolta.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira