Einn kann á Excel-skjalið Ari Brynjólfsson skrifar 29. ágúst 2019 07:45 Haustið 2017 voru 67 nemendur í 1. til 7. bekk í Korpuskóla, sem tilheyrir Kelduskóla. Fréttablaðið/Ernir
Mismunandi skilningur er á milli skólastjórnenda og fjárveitingarvaldsins hjá Reykjavíkurborg um hversu mikið fjármagn þarf til að reka grunnskóla í borginni. Lítið svigrúm er til hagræðingar innan skólanna og því er helst lagt til að sameina skóla, er þá nefnt sérstaklega að loka Korpuskóla. Þetta kemur fram í skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar, IE, um rekstur grunnskóla sem lögð verður fram á fundi borgarráðs í dag. Fjárúthlutanir til grunnskóla eru um 25 milljarðar króna á ári og eru rúmlega einn fimmti af heildarfjárúthlutunum borgarinnar. Alls rekur borgin 36 grunnskóla. Í skýrslunni voru þó aðeins teknir fyrir níu skólar, þar af 1. til 7. bekkur í tveimur og 8. til 10. bekkur í tveimur. Einnig var rætt við fjölda skólastjórnenda og starfsmenn Skóla- og frístundasviðs, SFS. IE setur fram alls 24 ábendingar en vegna engra þeirra er krafist tafarlausra úrlausna. Helsta niðurstaðan sé að skólastjórnendur og SFS hafi annan skilning á hvað sé nauðsynlegt fjármagn til að reka grunnskóla en fjárveitingarvald borgarinnar. SFS fær fjármuni úthlutaða frá borginni sem er síðan úthlutað á skóla. SFS hefur skorið niður fjármagn og þar af leiðandi fari margir skólar ítrekað fram úr fjárheimildum. „Í raun standa skólarnir almennt frammi fyrir því að nánast allir rekstrarliðir fá of knappt fjármagn,“ segir í skýrslunni. Sumir skólar fari ítrekað fram úr fjárheimildum á meðan aðrir skili iðulega afgangi. Í skýrslunni er vikið að sérstöku Excel-vinnuskjali sem hefur verið notað í nær tuttugu ár til að úthluta fjármunum. Er talað um þetta skjal sem „plástrað“ og „úrelt“. „Aðstæður grunnskólanna eru mismunandi að mörgu leyti og það er tæpast hægt að ákvarða fjárhagsramma í Excel-skjali án þess að taka tillit til sérstakra aðstæðna,“ segir í skýrslunni. Aðeins einn starfsmaður hefur þekkingu til að vinna með skjalið, mun það hafa valdið vandræðum þegar viðkomandi hafi forfallast við úthlutun fjármuna. Í skýrslunni er þó tekið fram að búið sé að skipa vinnuhóp til að skoða málið. Í viðtölum við skólastjórnendur kemur fram að þeir telji sig almennt hafa litla aðkomu að úthlutun fjárhagsramma. „Sumir kváðust þó reyna að koma sínum sjónarmiðum á framfæri en töldu það raunar skila litlum árangri,“ segir í skýrslunni. Í dag fær skólinn 2 prósent af afgangi og halla milli ára, leggur IE til að þessu verði hætt til að hvetja skólastjórnendur til að reka skólana með sem hagkvæmustum hætti. Fram kemur í skýrslunni að eftir samtöl við skólastjórnendur og skoðun tölulegra gagna séu fá tækifæri til hagræðingar. Helst liggi þeir möguleikar í sameiningum skóla, er þá sérstaklega nefnt að miðað við að kostnaður við hvern nemanda sé minni í skólum sem hafa aðeins nemendur frá 8. til 10. bekkja, þá þurfi færri kennara á hvern nemanda og möguleikar opnist á fleiri valgreinum. Aðeins er þó mælt með að einn skóli sameinist á næstunni, Korpuskóli í Grafarvogi verði lagður niður og skólastarfið að fullu sameinað Kelduskóla. Aðeins 67 börn voru í Korpuskóla árið 2017. „Það er verulega óhagkvæmt að reka svo litla starfsstöð þar sem það kallar á aukinn mannafla og kostnað við rekstur húsnæðis,“ segir í skýrslunni um Korpuskóla. Fram kemur í athugasemd frá SFS og borgarstjórn að þetta sé þegar í skoðun. „Sparnaður af slíkri sameiningu er verulegur,“ segir í athugasemdinni.
Birtist í Fréttablaðinu Lokun Kelduskóla, Korpu Reykjavík Skóla - og menntamál Stjórnsýsla Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira