Lífið

Opinn fyrir því að vera næsti Bachelorinn

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Derek þykir hafa staðið sig vel í afar erfiðum aðstæðum. Aðdáendur þáttanna eru margir spenntir fyrir hugmyndinni um Derek sem næsta Bachelor.
Derek þykir hafa staðið sig vel í afar erfiðum aðstæðum. Aðdáendur þáttanna eru margir spenntir fyrir hugmyndinni um Derek sem næsta Bachelor. Vísir/getty
Derek Peth er opinn fyrir hugmyndinni um að verða í aðalhlutverkinu í næstu þáttaröð af raunveruleikaþáttunum The Bachelor sem sýndir eru á bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC.

Þetta herma heimildir Entertainment Tonight.

Upphaflega var Derek þátttakandi í 12. þáttaröðinni af The Bachelorette þar sem hann ásamt öðrum karlmönnum kepptu um hylli Joelle Fletcher.

Í sumar var hann síðan fengin til að taka þátt í hliðarafurð þáttanna Bachelor in Paradise en tökur fóru fram fyrr í sumar í Mexíkó. Þættirnir veita fyrrverandi þátttakendum The Bachelor og The Bachelor annað tækifæri til að finna ástina.

Derek varð strax yfir sig hrifinn af Demi Burnett, sem var í þáttaröð Coltons Underwood.

Hrifningin virtist gagnkvæm en þegar líða tók á þættina kom í ljós að Demi hafði átt í ástarsambandi með konu að nafni Kristian Haggerty. Demi var heiðarleg strax í byrjun og greindi Derek frá sambandinu en það reyndist Demi erfitt að jafna sig á sambandsslitunum og hún stóð sig að því að hugsa öllum stundum um Kristian.

Sjá nánar: Gleðjast yfir því að fá loksins að sjá hinsegin ást í The Bachelor

Stjórnendur þáttanna brugðu á það ráð að bjóða Kristian að koma í þættina, sem hún þáði, en þegar Demi hitti Kristian í þáttunum varð henni það ljóst að hún væri ástfangin af henni. Þetta er í fyrsta sinn sem aðdáendur þáttanna fá að fylgjast með hinsegin ástarsögu og þykir mörgum aukinn fjölbreytileiki hafa verið löngu tímabær.

Derek og Demi þegar allt lék í lyndi.Vísir/getty
Demi sleit sambandinu við Derek sem, þrátt fyrir að sýna henni mikinn skilning, var miður sín og í ástarsorg.

Áhorfendum þáttanna hefur þótt mikið til Dereks koma og hefur hann vaxið í áliti því hann þótti standa sig afar vel í erfiðum aðstæðum. Þrátt fyrir að vera í ástarsorg var hann hugulsamur gagnvart Demi og heilsaði jafnvel upp á Kristian.

Heimildir ET herma að Derek sé nú í góðu jafnvægi, hafi lært helling á veru sinni í Mexíkó og sé opinn fyrir því að verða næsti Bachelorinn.

Valið stendur nú á milli Mike Johnson, sem yrði fyrsti þeldökki Bachelorinn, og Peters Weber sem er flugmaður. Eftir að Derek þótti standa sig eins vel og raun bar vitni er einnig möguleiki á því að hann verði valinn. Sömu heimildir fjölmiðilsins ET herma að búið sé að útiloka hinn snoppufríði Tyler Cameron, sem var í öðru sæti í The Bachelorette, vegna þess að hann hefur undanfarið verið að slá sér upp með fyrirsætunni Gigi Hadid.

View this post on Instagram

The one thing missing to complete a perfect weekend

A post shared by KRISTIAN HAGGERTY (@kristianhaggerty) on


Tengdar fréttir

Áhorfendur Bachelorette-þáttanna agndofa yfir lygilegum endalokum

Raunveruleikaþættirnir njóta mikilla vinsælda um allan heim en þeir eru sýndir á sjónvarpsstöðinni ABC. Í næstu viku hefst síðan Bachelor in Paradise sem er eins konar hliðararfurð þáttanna þar sem gamalkunnir þátttakendur fá annað tækifæri til að finna ástina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.