550 milljónir í hagnað Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar 21. ágúst 2019 07:15 ÞG Verk var stofnað árið 1998 af Þorvaldi H Gissurarsyni sem er enn þann dag í dag forstjóri og eigandi félagsins. Vísir/Vilhelm
ÞG Verk, sem er eitt stærsta verktakafyrirtæki landsins, hagnaðist um 550 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 762 milljónir árið 2017. Stjórn félagsins hefur lagt til að greiddur verði út arður að fjárhæð 100 milljónir króna vegna síðasta rekstrarárs. Eigið fé félagsins nam 1.982 milljónum króna í árslok 2018 og eignir 3.695 milljónum. Rekstrartekjur námu 10 milljörðum á síðasta ári og stóðu nokkurn veginn í stað á milli ára. Heildartekjur drógust hins vegar saman um tæp 11 prósent og skýrist það af því að á árinu 2017 voru seldar fasteignir fyrir 1,1 milljarða en engin fasteign var seld á síðasta ári. ÞG Verk var stofnað árið 1998 af Þorvaldi H Gissurarsyni sem er enn þann dag í dag forstjóri og eigandi félagsins. Á árinu störfuðu 172 starfsmenn hjá félaginu og námu launagreiðslur samtals 1,7 milljarði króna. Þar af námu laun framkvæmdastjóra 55 milljónum króna. ÞG Verk hefur á síðustu árum byggt hundruð íbúða fyrir almennan íbúðamarkað, meðal annars í fimm mismunandi byggingum á Hafnartorgi í miðbæ Reykjavíkur. Markaðurinn greindi frá því fyrr á árinu að ÞG Verk hefði selt eða samþykkt kauptilboð í allar íbúðir nema tvær, samtals þrjátíu íbúðir, í fyrstu tveimur húsum á Hafnartorgi í. Þá var haft eftir Þorvaldi í byrjun árs að verkefnið kostaði í heild um 13 til 14 milljarða. Um það bil helmingur fjárhæðarinnar væri lánsfé frá Landsbankanum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bankarnir byrjaðir að hækka vexti Neytendur Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Neytendur Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka Neytendur „Kristrún, það er ljótt að plata“ Viðskipti innlent Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað Viðskipti innlent Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Samstarf Fleiri fréttir Lyfjaver opnar nýtt apótek í Klíníkinni Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn Sjá meira