Hafa ekki tapað einu einasta stigi síðan að Hjörtur kom inn í byrjunarliðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. september 2019 15:45 Hjörtur lék vel í leiknum á laugardag. Hér sést hann í baráttunni. vísir/daníel
Í síðustu undankeppnum hefur íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu telft nánast fram sama kjarnanum og þetta gullaldarlið hefur skilað Íslandi sæti á bæði Evrópumótinu í Frakklandi 2016 sem og á heimsmeistaramótinu í Rússlandi 2018. Báðar hinar undankeppninnar eiga það sameiginlegt að einn leikmaður hefur unnið sig frekar óvænt inn í byrjunarliðið og skilað heldur betur sínu. Þetta voru annars vegar framherjinn Jón Daði Böðvarsson í undankeppni EM 2016 og hins vegar bakvörðurinn Hörður Björgvin Magnússon í undankeppni HM 2018. Bæði Jón Daði og Hörður unnu sér sæti í liðinu og héldu því. Í núverandi undankeppni, fyrir EM 2020, má segja að bakvörðurinn Hjörtur Hermannsson sem leikmaðurinn sem bætist við gullna kjarnann sem hefur skilað okkur svo langt. Hjörtur sat á bekknum í fyrstu tveimur leikjunum og þá spilaði Birkir Már Sævarsson í hægri bakvarðarstöðunni. Eftir 4-0 skell á móti Frökkum á Saint-Denis tóku þjálfararnir þá erfiðu ákvörðun að gera breytingar á vörninni. Birki Má var fórnað en í hans stað kom Hjörtur Hermannssin inn í byrjunarliðið. Það er óhætt að segja að þessu breyting hafi gengið upp en Hjörtur var þarna í fyrsta sinn í byrjunarliði íslenska landsliðsins í mótsleik. Íslenska liðið hefur nefnilega unnið alla þrjá leiki sína eftir að Hjörtur kom inn í byrjunarliðið og liðið hefur ennfremur aðeins þurft að sækja boltann einu sinni í markið sitt á 270 mínútum. Íslensku landsliðsstrákarnir hafa ekki tapað einu einasta stigi síðan að Hjörtur kom inn í byrjunarliðið og nú er að vonast til þess að það haldi áfram á móti Albaníu á þriðjudagskvöldið.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Íslenski boltinn Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Fótbolti Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Fótbolti „Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim“ Sport Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Handbolti „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Fótbolti Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Fótbolti Hótar að mæta aldrei aftur eftir „sorglega gagnrýni“ Sport Fleiri fréttir Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Farsinn framlengist: Senegal áfrýjar til Alþjóðadómstólsins Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Ísland spilar í Tókýó í sumar „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Vill verða varamaður Kane á HM í sumar „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Norska ævintýrið endaði með martröð í Portúgal Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Isak sást á æfingu Liverpool Guðrún ætlar að slást við Fanneyju og Thelmu um titilinn Þurfa á fullkomnu kvöldi að halda Kemur alltaf í Þór Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið „Dyrnar eru alltaf opnar fyrir Messi“ „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri Sjá meira