Tyrkir sluppu með skrekkinn Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 7. september 2019 20:45 Tyrkir áttu erfitt með að koma boltanum í netið vísir/getty Tyrkir rétt náðu að merja sigur á Andorra í riðli Íslands í undankeppni EM 2020 í fótbolta í kvöld. Fyrir leikinn í kvöld var Andorra án stiga á botni riðilsins eftir fimm umferðir en Tyrkland var í baráttunni við Ísland og Frakkland á toppi riðilsins. Tyrkir höfðu mikla yfirburði í öllum tölum leiksins. Þeir voru með boltann þrjá fjórðu leiktímans og áttu 29 skot í átt að marki, þó aðeins tíu þeirra hafi ratað á rammann. Andorra átti ekkert skot á rammann. Það reyndist heimamönnum hins vegar þrautin þyngri að koma boltanum í marknetið og var það ekki fyrr en á 89. mínútu að ísinn brotnaði og Ozan Tufan skoraði sigurmarkið fyrir Tyrki. Lokatölur 1-0. Markið tryggði það að staðan í riðlinum er óbreytt. Frakkar eru á toppnum, svo koma Tyrkir og þar á eftir Íslendingar en öll eru liðin með 12 stig eftir fimm leiki. Albanir eru með sex, Moldóva þrjú og Andorra enn án stiga. EM 2020 í fótbolta
Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik Körfubolti
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti
Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik Körfubolti