Kvöldið var ögn erfiðara fyrir stjórnarflokkana þrjá, Javnaðarflokkinn, Tjóðveldi og Framsókn. Fylgi allra flokkanna minnkaði um rúmlega tvö prósent og misstu Javnaðarflokkurinn og Tjóðveldi einn mann hvor á meðan Framsókn stóð í stað.
Ætlar að ræða við aðra flokka um mögulegt samstarf
Þrátt fyrir minnkandi fylgi Javnaðarflokksins eru þeir vongóðir um að getað myndað ríkisstjórn með öðrum flokkum á þingi. Aksel V. Johannesen, formaður flokksins og núverandi lögmaður Færeyja, sagði í viðtali við Portal.fo að niðurstöðurnar væru ekki svo slæmar í ljósi þess að litlu mátti muna að flokkurinn tryggði sér átta þingmenn. Hann ætlar sér að ræða við formenn hinna flokkanna og athuga hvort einhver möguleiki sé á samstarfi í ríkisstjórn.„Kjósendur hafa talað, maður verður að taka því þó svo að ég sé sannfærður að þær breytingar sem hafa orðið í ríkisstjórninni séu réttar og vona að þeim verði ekki breytt um of,“ sagði Aksel í samtali við Portalin.
Möguleiki er á samstarfi milli Fólkaflokksins og Sambandsflokksins, sem jók einnig fylgi sitt um 1,6 prósent og bætti við sig þingmanni, en skoðanakannanir sýndu fram á að kjósendur þessara flokka væru hvað hlynntastir því samstarfi. Flokkarnir þyrftu þó að fá þriðja flokk inn í það samstarf en samanlagt eru þeir með 15 þingsæti af 33.

Ungir í sókn
Athygli vekur að tíu þingmenn taka nú sæti á þingi í fyrsta sinn og eru fimm þeirra 27 ára eða yngri. Til að mynda vann hinn 22 ára gamli Beinir Johannesen stórsigur í framboði sínu fyrir Fólkaflokkinn og naut mesta fylgis á meðal kjósenda flokksins.Þá var hinn 25 ára gamli Bjarni Kárason Petersen einn þeirra tveggja sem Framsókn náði inn á þing og hlaut hann fleiri atkvæði en formaður flokksins.
Tveir nýir flokkar voru í framboði, Færeyjaflokkurinn og Framtakið. Báðir flokkar vöktu athygli í kosningabaráttu sinni en Framtakið, nýjasti flokkurinn í framboði barðist nær eingöngu fyrir lögleiðingu kannabisefna.
Færeyjaflokkurinn hafði verið vakinn aftur úr dvala fyrr á árinu og fór óhefðbundnar leiðir í undirskriftasöfnun sinni, en til þess að ná þeim áttahundruð undirskriftum sem þurfti til buðu þeir upp á happdrætti fyrir alla þá sem skrifuðu undir og áttu þeir möguleika á því að vinna flugmiða. Hvorugur flokkanna náði manni inn á þing.