Telja mögulegt að óvissuferð breska skyrbóndans um Ísland skili á endanum milljónum punda Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 17. september 2019 12:00 Sam Moorhouse fór ásamt Þórarni E. Sveinssyni vítt og breitt um landið til að kynna sér skyrgerð. Vísir
Fjárfestar hafa fjárfest í skyrframleiðslu breska bóndans Sam Moorhouse og er ætlunin að fjárfestingin verði til þess að skyrið sem framleitt er í lítilli verksmiðju við ættaróðal Moorhouse í Bretlandi verði efst á blaði á breskum skyrmarkaði. Fjárfestarnir telja að framleiðsla Moorhouse geti orðið „margra milljóna“ punda fyrirtæki þegar fram líða stundir.Líkt ogVísir fjallaði um á sínum tíma kom Moorhouse til Íslands árið 2014með aðeins eitt markmið. Að læra að framleiða skyr. Hann smakkaði sig áfram þangað til að hann rakst á mjólkurfræðinginn Þórarinn Sveinsson, sem samþykkti að aðstoða Moorhouse við skyrnámið.Úr varð að Moorhouse ferðaðist vítt og breitt um Ísland með Þórarni, tók nokkrar vaktir hjá Örnu í Bolungarvík áður en hann sneri heim með fullan vasa af hugmyndum um hvernig hann gæti framleitt skyr. Með dyggri aðstoð Þórarins kom Moorhouse sér upp skyrframleiðslu á bóndabæ fjölskyldu hans í Yorkshire-héraði í Bretlandi.Sjá einnig: Bjargaði fjölskyldufyrirtækinu með óvissuferð til ÍslandsSíðan þá hefur skyrið farið sigurför um Bretland og er það nú til sölu í alls 110 verslunum í norðurhluta Bretlands. Moorhouse hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir skyrið og var meðal annars valinnfrumkvöðull ársins á verðlaunahátíð breskra mjólkurbænda árið 2017.Afrakstur vinnunnar.VísirHafa mikla trú á skyrinu Í viðtali við Craven Herald í Bretlandi segir Moorhouse að nú sé hins vegar kominn tími til að auka framleiðsluna og þar spila nýju fjárfestarnir lykilhlutverk.Ætlunin er að framleiða 55 tonn af skyri á hverju ári en á fyrsta ári verksmiðjunnar runnu níu tonn af skyri úr verksmiðjunni. Þrír starfsmenn starfa fyrir verksmiðjuna en með hinu nýja fjármagni er ætlunin að bæta við sex nýjum starfsmönnum og þrefalda þar með starfsmannafjöldann.„Langtímamarkmið er að Hesper Farm verði vörumerki núner eitt á skyrmarkaði í Bretlandi auk þess sem að við munum þróa nýjar spennandi mjólkurvörur,“ sagði Moorhouse.Win Batist, sem fer fyrir fjárfestunum, virðist hafa mikla trú á Moorhouse og framleiðslu hans.„Sam fékk aðstoð frá foreldrum hans til að byrja með en það er ljóst að hann þurfti mun meira fjármagn til þess að ná markmiðum sínum. Fyrirtækið hans á möguleika á því að verða að margra milljóna punda fyrirtæki, ekki síst vegna strangrar gæðastjórnunar hans,“ er haft eftir Batist á vef Craven Herald.
Bolungarvík Bretland Íslandsvinir Landbúnaður Tengdar fréttir Breski bóndinn sem lærði að búa til skyr á Íslandi frumkvöðull ársins Sam Moorhouse, ungur breskur bóndi sem ferðaðist um Ísland með það að markmiði að læra að búa til skyr, var valinn frumkvöðull ársins á verðlaunahátíð breskra bænda í síðasta mánuði 6. desember 2017 13:48 Bjargaði fjölskyldufyrirtækinu með óvissuferð til Íslands Hinn 23 ára gamli breski mjólkurbóndi Sam Moorhouse fór ótróðnar slóðir þegar mjólkurbændur í Bretlandi stóðu frammi fyrir erfiðum tímum vegna lágs afurðarverðs. 13. október 2016 13:30 Mest lesið Reikningur tengdur dularfullri Grindavíkur-mynt horfinn sporlaust Viðskipti innlent Ný ríkisstjórn sé að efla erlenda mjólkurframleiðslu Viðskipti innlent Neytendur beri kostnað þess að reka þrjá stóra banka Viðskipti innlent Samruninn geti skilað auknum sparnaði til neytenda Viðskipti innlent Sjúkur í Downton Abbey og með unglingastæla á kvöldin Atvinnulíf Ísland komið í skammarkrókinn vegna osts Viðskipti innlent Þröstur tekur við Bændablaðinu Viðskipti innlent Árni Friðriksson í loðnu norður af Vestfjörðum Viðskipti innlent Bankarnir byrji í brekku Viðskipti innlent Almenningur fær forgang og lægsta verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rafmyntarforstjóri játar sig sekan um að féfletta viðskiptavini Musk og félagar gerðu 97,4 milljarða dala tilboð í OpenAI Beina spjótum sínum að bandarískum tæknifyrirtækjum Allar auglýsingar Super Bowl á sama stað Sagðir ætla að hafna samruna við Honda Tollastríð hafið: „Ekki gott fyrir Ísland og lífskjör Íslendinga“ Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Kínversk kúvending leiddi til hruns vestanhafs Enn deila Musk og Altman MrBeast gerir tilboð í TikTok Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Höfða mál gegn Musk vegna kaupanna á Twitter Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjá meira
Breski bóndinn sem lærði að búa til skyr á Íslandi frumkvöðull ársins Sam Moorhouse, ungur breskur bóndi sem ferðaðist um Ísland með það að markmiði að læra að búa til skyr, var valinn frumkvöðull ársins á verðlaunahátíð breskra bænda í síðasta mánuði 6. desember 2017 13:48
Bjargaði fjölskyldufyrirtækinu með óvissuferð til Íslands Hinn 23 ára gamli breski mjólkurbóndi Sam Moorhouse fór ótróðnar slóðir þegar mjólkurbændur í Bretlandi stóðu frammi fyrir erfiðum tímum vegna lágs afurðarverðs. 13. október 2016 13:30