102 milljarðar í nýja orkumæla, aðveitustöð rafmagns fyrir farþegaskip og fleira Atli Ísleifsson skrifar 30. september 2019 14:34 Fjárhagsspá samstæðu OR fyrir árabilið 2020 til 2025 var samþykkt af stjórn OR í dag. vísir/vilhelm
Fjárhagsspá Orkuveitu Reykjavíkur gerir ráð fyrir að næstu sex árin verði 102 milljörðum króna varið í viðhalds- og nýfjárfestingar á vegum samstæðunnar. Allsherjaruppfærsla á orkumælum Veitna er stærsta einstaka fjárfestingarverkefnið á tímabilinu en einnig er gert ráð fyrir byggingu nýrrar aðveitustöðvar rafmagns sem getur þjónað farþegaskipum í Sundahöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá OR en fjárhagsspá samstæðu OR fyrir árabilið 2020 til 2025 var samþykkt af stjórn OR í dag. Spáin fer nú til umfjöllunar sem hluti af fjárhagsáætlun samstæðu Reykjavíkurborgar. Í tilkynningunni segir að fjárhagur OR sé traustur og engra stórra breytinga að vænta í tekjum eða gjöldum á næstu árum samkvæmt spánni. Innan samstæðunnar eru Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykavíkur, auk móðurfélagsins. Í spánni kemur fram að á næstu árum verði haldið áfram að greiða niður skuldir og er gert ráð fyrir að nettóskuldir Orkuveitu Reykjavíkur lækki um 35 milljarða frá 2019 til ársloka 2025. Þá segir að arðgreiðslur til eigenda – það er Reykjavíkurborgar (93,5 prósent), Akraneskaupstaðar (5,5 prósent) og Borgarbyggðar (1 prósent) – munu nema 15 milljörðum króna á árunum 2020 til 2025.
Akranes Borgarbyggð Orkumál Reykjavík Mest lesið Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Sjá meira