Lífið

Draumurinn varð að veruleika eftir tvö launalaus ár

Stefán Árni Pálsson skrifar
Egill hefur rekið Suitup Reykjavík frá árinu 2014.
Egill hefur rekið Suitup Reykjavík frá árinu 2014. vísir/vilhelm
Egill Ásbjarnarson er ungur maður á uppleið. Hann stofnaði jakkafatafyrirtækið Suitup Reykjavík sem hefur náð fótfestu á íslenskum markaði. Egill er gestur vikunnar í Einkalífinu. Egill og Jökull Vilhjálmsson viðskiptafélagi hans ákváðu að leggja allt undir og stofna fyrirtækið Suitup Reykjavik árið 2014.

„Jökull kemur til mín með þessa hugmynd og var sjálfur búinn að vinna ákveðna forvinnu að þessu öllu saman. Ég var búinn að vera vinna í NTC og Kulture og þessu öllu í einhver sjö ár á þessum tímapunkti. Hann kemur að máli við mig og ég segi bara strax já,“ segir Egill um tímann þegar þeir voru við það að stofna fyrirtækið. Hann segir að þeir hafi byrjað á því að setja eigin pening í það að fjárfesta í nauðsynlegum hlutum sem tengdust rekstrinum.

„Það var bara ehf, mátunarföt og efnabækur. Það var í rauninni bara upphafskostnaðurinn. Fyrsta eitt og hálfa árið, næstum því tvö ár erum við að vinna bara launalaust í þessu. Hver einasta króna sem kemur inn helst inni og fer í það að fjármagna reksturinn frekar.“

 

Egill segir að þeir hafi í rauninni ekki verið stressaðir til að byrja með.

„Ég þakka bara einhverskonar barnslegir einfeldni. Ég er 22 ára þegar við byrjum og maður er bara ungur og er ekkert að stressa sig á hlutunum,“ segir Egill sem fer ítarlega yfir sögu fyrirtækisins í þættinum.

Í þættinum hér að ofan ræðir hann einnig um uppvaxtarárin, menntaskólaárin og hvernig hann vakti oft athygli fyrir klæðaburð sinn. Hann kom að stofnun á smáforriti en tæknigeirinn hentaði honum ekki og því sneri hann sér að fatnaði sem hefur gengið vel. Egill fer vel yfir það hvaða mistök karlmenn gera oft og tíðum í klæðaburði.


Tengdar fréttir

Drakk frá mér alla ábyrgð

Ingólfur Þórarinsson hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins síðastliðinn fimmtán ár. Ingó er gestur vikunnar í Einkalífinu en í þættinum fer söngvarinn um víðan völl og kemur inn á það að hann hafi ekki drukkið áfengi í sjö mánuði.

„Hefði ekki viljað hafa neinn annan með mér í þessu“

Síðastliðinn áratug hefur Sólmundur Hólm Sólmundarson starfað sem skemmtikraftur og heillað þjóðina upp úr skónum. Árið 2017 greindist Sóli með eitlakrabbamein og við tók heljarinnar barátta við meinið.

Er mjög misskilin manneskja

Manúela Ósk Harðardóttir vakti fyrst athygli hér á landi árið 2002 þegar hún varð Ungfrú Ísland, aðeins 18 ára gömul. Síðan þá hefur Manúela verið áberandi hér á landi og jafnvel víðar. Hún hefur verið töluvert búsett í Bandaríkjunum en býr í dag í Hafnarfirðinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.